Andry José Hernández Romero er samkynhneigður förðunarmeistari sem flúði Venesúela þar sem hann óttaðist um líf sitt vegna kynheigðar sinnar og pólitískra skoðana. Hann sótti um alþjóðlega vernd í Bandaríkjunum árið 2024.
Ólögleg brottvísun
Tveimur dögum fyrir áheyrn í máli hans, þann 15. mars 2025, var hann ólöglega handtekinn og skyndilega vísað úr landi. Andry var í hópi 261 einstaklings sem var sendur ólöglega í CECOT-fangelsið í El Salvador án lagalegrar verndar í kjölfar þess að ríkisstjórn Trumps kallaði þá „erlenda óvini“.
Þetta var gert án dómsúrskurðar, áheyrnar og sanngjarnrar málsmeðferðar. Lögfræðingur Andrys fékk enga tilkynningu um brottvísunina.
Grimmilegar aðstæður í fangelsi
CECOT-fangelsið í El Salvador er eitt hættulegasta fangelsið í Norður- og Suður-Ameríku og alræmt fyrir ómannúðlegar og grimmilegar aðstæður. Amnesty International hefur skrásett gífurleg þrengsli, skort á læknisþjónustu og víðtæka illa meðferð sem hefur í nokkrum tilvikum leitt til dauða.
Gömlum stríðslögum beitt
Brottvísun Andrys var byggð á aldagömlum stríðslögum sem ríkisstjórn Trumps hefur beitt til að brottvísa fjölda fólks án sanngjarnrar málsmeðferðar. Margir þessir einstaklingar, líkt og Andry, sóttu um alþjóðlega vernd og hafa engin tengsl við glæpagengi og eru með hreina sakaskrá.
Ríkisstjórn Trumps telur sig geta hunsað lög og dómsúrskurði að geðþótta og litið fram hjá mannlegri virðingu.
Hvað þarf að gera?
Heimavarnaráðherra Bandaríkjanna verður að tryggja að Andry og öllum hinum sem var ólöglega vísað úr landi verði sendir til baka til Bandaríkjanna til að fá sanngjarna málsmeðferð á umsókn um alþjóðlega vernd og að hætt verði við frekari ólögmætar brottvísanir.