Loka þarf Alligator Alcatraz í Bandaríkjunum
Á afskekktum stað
Á afskekktum stað
Hernaðaraðgerðir bandarískra stjórnvalda í Venesúela undir forystu Donalds Trump Bandaríkjaforseta, sem leiddu til handtöku Nicolás Maduro og Cilia Flores, eru til marks um alvarlega ógn við mannréttindi íbúa landsins.
Vegna frétta um ungu konuna sem þjáist af þunglyndi og ýmsum röskunum og hefur samkvæmt þeim verið meira eða minna í einangrun í fangelsinu á Hólmheiði vill stjórn Íslandsdeildar Amnesty International koma eftirfarandi á framfæri.
Þrátt fyrir miklar áskoranir í heiminum í dag verðum við enn og aftur vitni að mikilvægi mannréttindabaráttunnar. Víða um heim krafðist fólk ábyrgðar frá stjórnvöldum, réttlætis fyrir þolendur kynbundins ofbeldis og frelsis fyrir mannréttindafrömuði. Hér koma góðar fréttir á síðustu sex mánuðum ársins sem veita von og sýna mikilvægi mannúðar og samtakamáttar.
Palestínski læknirinn Hussam Abu Safiya er framkvæmdastjóri Kamal Adwan-spítalans og hefur tjáð sig um hrun heilbrigðiskerfisins á Gaza. Hann var handtekinn að geðþótta af ísraelskum yfirvöldum 27. desember 2024 og hefur verið í haldi síðan.
Í mars 2011 gerðu Sýrlendingar uppreisn þar sem þeir söfnuðust saman og kröfðust umbóta og frelsis frá kúgun stjórnvalda. Stjórnvöld brugðust við af hörku sem endaði í hrikalegum vopnuðum átökum fram til ársins 2024. Ríkisstjórn Bashar al-Assad var steypt af stóli 8. desember 2024 og endaði þar með 54 ára einræðistíð Assad-fjölskyldunnar í Sýrlandi.
Margverðlaunuð sýrlensk heimildarmyndagerðarkona, aðgerðasinni og rannsakandi, Lina, verður gestur Íslandsdeildar Amnesty International dagana 27. september til 1. október á RIFF alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík. Hin rómaða heimildarmynd hennar 5 Seasons of Revolution verður sýnd á hátíðinni þriðjudaginn 30. september kl. 19:10 í Háskólabíó, sal 2. Að henni lokinni verða pallborðsumræður og spurningum svarað úr sal.
Á fyrstu sex mánuðum ársins hafa fyrirsagnir mótast af sögum um ótta, sundrung og hatur. Þrátt fyrir það hafa aðgerðasinnar um heim allan lagt sitt af mörkum til að halda voninni lifandi.
Hundruð fanga í Evin-fangelsinu í Tehran, þar á meðal einstaklingar í haldi að geðþótta, búa við grimmilegar og ómannlegar aðstæður.
Ísland beitir einangrunarvist í gæsluvarðhaldi óhóflega og brýtur þannig meðal annars gegn samningi Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu með alvarlegum afleiðingum fyrir sakborninga og rétt þeirra til sanngjarnra réttarhalda.
Innflytjendayfirvöld Bandaríkjanna handtóku Mahmoud Khalil ólöglega og sætir hann nú geðþóttavarðhaldi vegna hlutverks hans í nemendamótmælum við Columbia-háskólann. Hann hefur ekki verið ákærður fyrir neinn glæp.
Olha Baranevska, leikskólakennari á eftirlaunum frá borginni Melitopol í Úkraínu sem hefur opinberlega stutt Úkraínu, neitaði að halda aftur til vinnu eftir hernám Rússlands í febrúar 2022.