Rússland

Látið umhverfisaðgerðasinna lausan

Vyacheslav Egorov er mikil­virkur umhverfis­að­gerðasinni frá bænum Kolomna í Rússlandi. Hann stóð fyrir frið­sam­legum mótmælum vegna fyrir­hug­aðrar land­fyll­ingar árið 2018. Hann var rang­lega ákærður og settur í stofufang­elsi árið 2019.

Stofufang­elsinu lauk sex mánuðum síðar en ákær­urnar á hendur honum voru ekki felldar niður. Þann 14. október 2021 var Vycheslav Egorov hand­tekinn og dæmdur í eins árs og þriggja mánaða fang­elsi. Rúss­nesk yfir­völd verða samstundis að láta hann lausan.

Vyacheslav leiddi frið­samleg mótmæli fjölda fólks í heimabæ sínum Kolomna þar sem mótmæl­endur voru þeirrar skoð­unar að land­fylling myndi skaða umhverfið. Vyacheslav var ákærður þann 31. janúar 2019 á grund­velli 212.1 greinar rúss­neskra hegn­ing­ar­laga, einnig þekkt sem „Dadin greinin“, sem refsi­væðir „ítrekuð brot á reglu­gerðum um opin­berar samkomur“. „ Dadin greinin“ var innleidd árið 2014 í þeim tilgangi að takmarka funda­frelsi og stangast hún á við mann­rétt­inda­skyldur Rúss­lands.

Áfrýjun Vyascheslav verður tekin fyrir dómstóla á næst­unni. Það er því mikil­vægt að grípa til aðgerða og krefjast þess að ákærur á hendur honum verði felldar niður og hann leystur úr haldi.

Á tímum hamfara­hlýn­unar er mikil­vægt að við stöndum með umhverfis­að­gerða­sinnum. Frið­samleg mótmæli Vyacheslav eiga að fá að heyrast en ekki að leiða til fang­els­is­dóms.

Skrifaðu undir ákall um að ríkis­sak­sóknari Rúss­lands, Igor Krasnov, geri allt sem í hans valdi stendur til að leysa Vyacheslav Egorov úr haldi samstundis og að ákærur á hendur honum verði felldar niður.

Þau þurfa þína hjálp!

Þín undirskrift getur bjargað mannslífi

Rússland

Fólk fangelsað fyrir að mótmæla stríðinu í Úkraínu

Rússnesku ritskoðunarlögin brjóta gegn mannréttindum. Rússland verður að afnema þessi ósanngjörnu lög án tafar og leysa úr haldi öll þau sem eru fangelsuð fyrir að tjá skoðanir sínar gegn stríðinu. Sýnum fólki í Rússlandi samstöðu sem hefur þor til að mótmæla friðsamlega stríðinu gegn Úkraínu.

Kólumbía

Verndum mannréttindafrömuði í Kólumbíu

Dag hvern hætta mannréttindafrömuðir lífi sínu í þágu mannréttinda í Kólumbíu. Vernda verður rétt þeirra til að tryggt sé að kólumbískt fólk geti lifað lífi sínu frjálst undan ofbeldi. Að berjast fyrir mannréttindum í Kólumbíu er afar hættulegt og mannréttindafrömuður er myrtur um það bil annan hvern dag. Skrifaðu undir og krefstu þess að kólumbísk stjórnvöld tryggi umfangsmiklar öryggisaðgerðir og verndi alla mannréttindafrömuði.

Alþjóðlegt

TikTok þarf að gæta öryggis barna og ungs fólks

Ungir notendur lýsa TikTok sem skaðlegum og ávanabindandi miðli þar sem þeir eiga á hættu að verða háð miðlinum út af tillögum sem sérstaklega eru sniðnar að þeim. Börn og ungt fólk sem horfa á myndefni sem tengist geðheilsu á TikTok eru líklegri til að fá tillögur um að horfa á sífellt fleiri myndbönd sem fjalla um, fegra og jafnvel hvetja til þunglyndislegra hugsana, sjálfskaða og sjálfsvígs. Skrifaðu undir og krefstu þess að að TikTok banni á heimsvísu sérsniðnar auglýsingar sem beint er að ungum notendum, og sjái til þess að það sé val að hafa sérsníðaðar tillögur að myndefni á efnisveitunni í stað þess að það sé sjálfgefið.

Lýðstjórnarlýðveldið Kongó

Stöðvið þvingaða brottflutninga í Kolwezi

Að svara eftirspurn heimsins eftir kopar og kóbalti er íbúum í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó dýrkeypt. Þeir eru beittir þvinguðum brottflutningum og ofbeldi ásamt því að heimili þeirra eru eyðilögð. Skrifaðu undir ákall um að Tshisekedi forseti stöðvi þvingaða brottflutninga og mannréttindabrot í grennd við kopar- og kóbaltnámur.

Venesúela

Leysið úr haldi ranglega fangelsaða Venesúelabúa

Í nýrri skýrslu Amnesty International fordæma samtökin kúgunarstefnu ríkisstjórnar Nicolás Maduro í Venesúela og greina frá málum níu einstaklinga sem sæta varðhaldi að geðþótta. Skrifaðu undir og krefstu tafarlausrar lausnar þeirra án skilyrða.

Ísrael

Stöðva þarf tæknivædda aðskilnaðarstefnu gegn Palestínubúum

Palestínubúar berjast gegn andlitsgreiningartækni sem er notuð til að takmarka grundvallarréttindi þeirra. Tækni getur bætt aðgengi að námi, heilbrigðisþjónustu, upplýsingum og veitt fólki aukin tækifæri óháð uppruna þess. Ekki skal beita tækninni til að áreita og jaðarsetja Palestínubúa í þeim tilgangi að framfylgja aðskilnaðarstefnu Ísraelsríkis. Skrifaðu undir bréf til framleiðenda andlitsgreiningartæknibúnaðarins og krefstu tafarlausrar stöðvunar á framleiðslu á tæknibúnaði sem notar andlitsgreiningu og lífkenni.