Kína

Leysið úr haldi fimm aðgerðasinna fyrir Ólympíuleikana

Kínversk stjórn­völd nýta Ólymp­íu­leikana í Peking til að styrkja ímynd sína og dreifa athygl­inni frá mann­rétt­inda­brotum sem eiga sér stað þar í landi.

Í Kína er fólk fang­elsað, hand­tekið og numið á brott fyrir að nýta tján­ing­ar­frelsi sitt. Það má ekki gleyma þeim einstak­lingum þegar fylgst er með Vetr­arólymp­íu­leik­unum.

Í febrúar og mars 2022 eiga Vetr­arólymp­íu­leik­arnir og Vetr­arólymp­íu­leikar fatl­aðra sér stað í Peking í Kína. Kínversk stjórn­völd nýta stórmót á borð við þessi í þeim tilgangi að nýta vinsældir íþrótta sér í hag og bæta ímynd sína á alþjóða­vett­vangi.

Sport­þvætti (e. Sportwashing) er hugtak sem nær yfir þetta og þekkist meðal ríkja sem vilja beina kast­ljósinu frá mann­rétt­inda­brotum í eigin landi.

Hægt er að telja upp ófá mann­rétt­inda­brot í Kína en brot gegn tján­ing­ar­frelsinu krefst sérstakrar athygli á heimsvið­burði sem þessum. Það að kínversk stjórn­völd séu halda alþjóð­legt stórmót sem er ætlað að stuðla að alþjóða­sam­vinnu og gagn­kvæman skilning er í hróp­andi mótsögn við þá ritskoðun og ógnar­stjórn gegn tján­ing­ar­frelsi einstak­linga sem á sér stað í Kína.

Meðan á Vetr­arólymp­íu­leik­unum stendur vekjum við athygli á fimm aðgerða­sinnum í Kína sem hafa verið frels­is­sviptir eða hafa horfið í kjölfar þess að hafa nýtt sér réttinn til tján­ingar. Zhang Zhan, Ilham Toti, Li Quaochu, Gao Zhis­heng og Rinchen Tsultrim tilheyra samfé­lags­hópum sem eru undir ströngu eftir­liti kínverskra yfir­valda og verða fyrir ítrek­uðum brotum á tján­ing­ar­frelsi og öðrum tengdum mann­rétt­inda­brotum.

Skrifaðu undir og þrýstu á að kínversk yfir­völd felli niður allar ákærur gegn aðgerða­sinn­unum fimm og leysi þá úr haldi án tafar.

Þau þurfa þína hjálp!

Þín undirskrift getur bjargað mannslífi

Rússland

Fólk fangelsað fyrir að mótmæla stríðinu í Úkraínu

Rússnesku ritskoðunarlögin brjóta gegn mannréttindum. Rússland verður að afnema þessi ósanngjörnu lög án tafar og leysa úr haldi öll þau sem eru fangelsuð fyrir að tjá skoðanir sínar gegn stríðinu. Sýnum fólki í Rússlandi samstöðu sem hefur þor til að mótmæla friðsamlega stríðinu gegn Úkraínu.

Kólumbía

Verndum mannréttindafrömuði í Kólumbíu

Dag hvern hætta mannréttindafrömuðir lífi sínu í þágu mannréttinda í Kólumbíu. Vernda verður rétt þeirra til að tryggt sé að kólumbískt fólk geti lifað lífi sínu frjálst undan ofbeldi. Að berjast fyrir mannréttindum í Kólumbíu er afar hættulegt og mannréttindafrömuður er myrtur um það bil annan hvern dag. Skrifaðu undir og krefstu þess að kólumbísk stjórnvöld tryggi umfangsmiklar öryggisaðgerðir og verndi alla mannréttindafrömuði.

Alþjóðlegt

TikTok þarf að gæta öryggis barna og ungs fólks

Ungir notendur lýsa TikTok sem skaðlegum og ávanabindandi miðli þar sem þeir eiga á hættu að verða háð miðlinum út af tillögum sem sérstaklega eru sniðnar að þeim. Börn og ungt fólk sem horfa á myndefni sem tengist geðheilsu á TikTok eru líklegri til að fá tillögur um að horfa á sífellt fleiri myndbönd sem fjalla um, fegra og jafnvel hvetja til þunglyndislegra hugsana, sjálfskaða og sjálfsvígs. Skrifaðu undir og krefstu þess að að TikTok banni á heimsvísu sérsniðnar auglýsingar sem beint er að ungum notendum, og sjái til þess að það sé val að hafa sérsníðaðar tillögur að myndefni á efnisveitunni í stað þess að það sé sjálfgefið.

Lýðstjórnarlýðveldið Kongó

Stöðvið þvingaða brottflutninga í Kolwezi

Að svara eftirspurn heimsins eftir kopar og kóbalti er íbúum í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó dýrkeypt. Þeir eru beittir þvinguðum brottflutningum og ofbeldi ásamt því að heimili þeirra eru eyðilögð. Skrifaðu undir ákall um að Tshisekedi forseti stöðvi þvingaða brottflutninga og mannréttindabrot í grennd við kopar- og kóbaltnámur.

Venesúela

Leysið úr haldi ranglega fangelsaða Venesúelabúa

Í nýrri skýrslu Amnesty International fordæma samtökin kúgunarstefnu ríkisstjórnar Nicolás Maduro í Venesúela og greina frá málum níu einstaklinga sem sæta varðhaldi að geðþótta. Skrifaðu undir og krefstu tafarlausrar lausnar þeirra án skilyrða.

Ísrael

Stöðva þarf tæknivædda aðskilnaðarstefnu gegn Palestínubúum

Palestínubúar berjast gegn andlitsgreiningartækni sem er notuð til að takmarka grundvallarréttindi þeirra. Tækni getur bætt aðgengi að námi, heilbrigðisþjónustu, upplýsingum og veitt fólki aukin tækifæri óháð uppruna þess. Ekki skal beita tækninni til að áreita og jaðarsetja Palestínubúa í þeim tilgangi að framfylgja aðskilnaðarstefnu Ísraelsríkis. Skrifaðu undir bréf til framleiðenda andlitsgreiningartæknibúnaðarins og krefstu tafarlausrar stöðvunar á framleiðslu á tæknibúnaði sem notar andlitsgreiningu og lífkenni.