Sameinuðu arabísku furstadæmin hætti að senda vopn til Súdan

Yfirstandandi átök í Súdan á milli súdanska hersins (SAF) og hersveita RFS (Rapid Support Forces) hafa hrakið milljónir á flótta. Sameinuðu arabísku furstadæmin eru meðal þeirra aðila sem eiga þátt í að kynda undir átökin með því að senda vopn og annan herbúnað til Súdan. Hersveitir RFS hafa notað sum þessara vopna og herbúnað í Darfúr þar sem framin hafa verið fjölmörg mannréttindabrot og brot á alþjóðlegum mannúðarlögum. Vopnaflutningar til Darfúr eru augljóst brot á vopnasölubanni öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.
Vaxandi átök

Íbúar Súdan upplifa sig gleymda í vaxandi ofbeldi í landinu þar sem stríðandi fylkingar eiga sök á gríðarlegu mannfalli og eyðileggingu. Íbúarnir eru fastir í miðjum átökunum og hafa hvorki aðgang að mat, vatni né  heilbrigðisþjónustu. Skertur aðgangur að netinu þýðir að óbreyttir borgarar hafa engan aðgang að upplýsingum um öruggar flóttaleiðir eða hvar hægt er að finna lyf. Stríðandi fylkingar hafa háð stríð frá árinu 2023 og að mestu virt að vettugi mannréttindi og alþjóðleg mannúðarlög.

Kynferðisofbeldi

Fólk er drepið á heimilum sínum eða í örvæntingafullri leit að mat, vatni og lyfjum. Á flótta lendir það í skothríð stríðandi fylkinga og skotið er á það af ásettu ráði í árásum. Konum og stúlkum, sumum aðeins tólf ára, hefur verið nauðgað og þær beittar kynferðisofbeldi af hálfu stríðandi fylkinga. Fólk er hvergi óhult og á hverri mínútu er líf fólks lagt í rúst.

Grimmdarverk í El Fasher og Zamzam

Hersveitir RSF tóku yfir borgina El Fasher þann 26. október 2025. Í kjölfarið drápu liðsmenn RFS óbreytta borgara í stórum stíl, beittu konur og stúlkur kynferðisofbeldi og tóku gísla fyrir lausnarfé. Í tengslum við þessa árás þurrkuðu hersveitir RFS heilu þorpin út í kringum El Fasher á kerfisbundinn hátt. Annað dæmi er stórfelld árás í apríl 2025 á Zamzam-flóttamannabúðirnar, þær stærstu í Norður-Darfúr fyrir fólk á flótta. Í árásinni á búðirnar og í kjölfar hennar drápu hersveitir RFS og bandamenn þeirra óbreytta borgara af ásettu ráði, rændu og eyðilögðu eignir ásamt því að taka gísla.

Vitnisburður

Ahmed, sem lifði af árásina á El Fasher segir eftirfarandi: „Þeir spurðu okkur: Eruð þið hermenn eða borgarar? Við sögðumst vera borgarar. Þeir svöruðu: Í El Fasher eru engir borgarar, allir eru hermenn.” Liðsmenn RFS skipuðu síðan bróður hans og hinum þremur mönnunum að leggjast niður og Ahmed heldur áfram: „Þegar þeir lögðust niður voru þeir teknir af lífi.“

Hvað getur þú gert?

Skrifaðu undir og krefstu þess að stjórnvöld í Sameinuðu arabísku furstadæmunum hætti öllum vopnaflutningum til hersveita RFS í Darfúr og verndi óbreytta borgara í Darfúr.
Má bjóða þér að skrifa undir fleiri mál?
Thanks for signing this particular petition
This is just a demo. You can put whatever you want in these pop-ups.