Kína
Kínverskur leikstjóri handtekinn fyrir heimildamynd
Kínverski leikstjórinn Chen Pinlin var handtekinn 5. janúar 2024 og er í haldi í Shanghai. Hann er í haldi fyrir það eitt að nýta tjáningarfrelsið með friðsamlegum hætti.
Palestína
Ekkert hefur spurst til tveggja palestínskra systra frá 6. janúar síðastliðnum eftir að Palestínska öryggisveitin neyddi þær aftur í umsjá ofbeldisfulls föður síns. Systurnar Wissam al-Tawil, 24 ára, og Fatimah al-Tawil, 20 ára, hafa þurft að þola margs konar ofbeldi af hálfu föður síns, þar með talið barsmíðar, morðhótanir og „yfirheyrslur” þar sem þeim var hótað með skotvopni. Amnesty International óskar eftir sönnunum þess efnis að Wissam og Fatimah séu á lífi og óhultar og að yfirvöld á Gaza veiti þeim umsvifalaust vernd frá öllu kynbundnu ofbeldi. Yfirvöld á Gaza eru skuldbundin af palestínskum og alþjóðlegum lögum til að grípa inn í og fyrirbyggja ofbeldi gegn konum og vernda þær frá frekara ofbeldi.
Wissam al-Tawil hefur sagt frá reynslu sinni af ofbeldi föður síns og lýsti yfir stuðningi við alla eftirlifendur kynbundins ofbeldis í grein sem birtist þann 24. desember 2022 á fréttasíðunni raseef22.net. Síðastliðna mánuði hafa Wissam og Fatimah sýnt gríðarlegt hugrekki með því að tala gegn ofbeldi á samfélagsmiðlum. Þær neita að láta þagga niður í sér jafnvel þó faðir þeirra hóti þeim. Yfirvöld hafa ekki heimilað þeim að yfirgefa Gaza-svæðið þrátt fyrir að þær séu ekki í farbanni.
Eftir að hafa verið í felum vikum saman voru þær færðar af yfirvöldum aftur heim til föður síns þann 5. janúar. Í síðustu skilaboðunum sem Amnesty International fékk frá þeim þann sama dag stóð „Við erum dauðadæmdar.”
Skorum á palestínsk yfirvöld að rannsaka hvort Wissam og Fatimah al-Tawil séu óhultar. Palestínsk yfirvöld bera ábyrgð á því að vernda þær gegn hvers konar ofbeldi og tryggja öryggi þeirra.
Þín undirskrift getur bjargað mannslífi
Kína
Kínverski leikstjórinn Chen Pinlin var handtekinn 5. janúar 2024 og er í haldi í Shanghai. Hann er í haldi fyrir það eitt að nýta tjáningarfrelsið með friðsamlegum hætti.
Ísrael
Ísrael fremur hópmorð á Palestínubúum á Gaza. Við krefjumst þess að íslensk stjórnvöld geri allt sem í þeirra valdi stendur til að stöðva hópmorðið (e. genocide). Í nýrri skýrslu Amnesty International, „You Feel Like You Are Subhuman”: Israel’s Genocide Against Palestinians in Gaza, er sýnt fram á að um hópmorð er að ræða á Palestínubúum á Gaza.
Alþjóðlegt
Yfirvöld og fyrirtæki eru óðum að þróa vopn með aukinni sjálfstýringu þar sem ný tækni og gervigreind eru notuð. Slík “drápsvélmenni” gætu verið notuð í átökum, við löggæslu eða landamæravörslu. Ákvarðanir sem snúast um líf og dauða ættu ekki að vera teknar af vélmennum. Hvetjum þjóðarleiðtoga heims til samningaviðræðna um ný alþjóðalög sem varða sjálfstýringu vopna.
Ekvador
Stjórnvöld í Ekvador hafa ekki framfylgt dómsúrskurði sem féll í vil níu baráttustúlkna og ungra kvenna um að binda enda á notkun gasbruna í Amazon-skóginum. Gasbrunar brjóta á réttindum íbúa nærliggjandi svæða vegna mengunar sem þeir valda. Skrifaðu undir ákall og krefstu þess að forseti Ekvador hrindi af stað áætlun um að stöðva notkun gasbruna (sérstaklega þeirra sem staðsettir eru 5 km frá byggð) í samræmi við dómsúrskurð, verndi mannréttindi íbúa sem búa í grennd við gasbruna, stuðli að réttlátum orkuskiptum þar sem dregið verður smám saman úr notkun jarðefnaeldsneytis.
Sambía
Suwilanji Situmbeko læknir var sóttur til saka fyrir samkynhneigð og dæmdur í 15 ára fangelsi ásamt erfiðisvinnu. Skrifaðu undir ákall um að Þordís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra þrýsti á sambísk stjórnvöld um að ógilda dóminn yfir Suwilanji Situmbeko og láta hann lausan tafarlaust og án skilyrða.
Sádi-Arabía
Yfirvöld í Sádi-Arabíu leggja allt kapp á að þagga niður í gagnrýnisröddum í landinu. Samfélagsmiðlafærsla þar sem kallað er eftir umbótum í mannréttindamálum eða yfirvöld gagnrýnd getur ein og sér leitt til ferðabanns, fangelsisvistar svo áratugum skiptir eða jafnvel dauðadóms.
Alþjóðlegt
Ungir notendur lýsa TikTok sem skaðlegum og ávanabindandi miðli þar sem þeir eiga á hættu að verða háð miðlinum út af tillögum sem sérstaklega eru sniðnar að þeim. Börn og ungt fólk sem horfa á myndefni sem tengist geðheilsu á TikTok eru líklegri til að fá tillögur um að horfa á sífellt fleiri myndbönd sem fjalla um, fegra og jafnvel hvetja til þunglyndislegra hugsana, sjálfskaða og sjálfsvígs. Skrifaðu undir og krefstu þess að að TikTok banni á heimsvísu sérsniðnar auglýsingar sem beint er að ungum notendum, og sjái til þess að það sé val að hafa sérsníðaðar tillögur að myndefni á efnisveitunni í stað þess að það sé sjálfgefið.
Allt starf Amnesty International er fjármagnað og drifið áfram af einstaklingum eins og þér. Hvert framlag — hver aðgerð vegur þungt.
Styrktu & skrifaðu undir áköll með símanum
Einfalt og áhrifaríkt aðgerðanet
Vertu með í netákallinu, þar sem meðlimir fá tilkynningar í tölvupósti um alvarleg mannréttindarbrot sem krefjast tafarlausra viðbragða.
Þú ætlar að styðja og .
Skrifaðu undir og Amnesty á Íslandi sendir viðeigandi aðilum bréf í þínu nafni. Engar aðrar persónuupplýsingar en nafn þitt munu fylgja bréfinu á viðkomandi stjórnvöld.
Með því að skrifa undir málin samþykkir þú skilmála Íslandsdeildar Amnesty International um undirskriftir og persónuverndarstefnu