Jamshid Sharmahd er 66 ára gamall þýsk-íranskur stjórnarandstæðingur í haldi íranskra yfirvalda sem gefa ekki upp hvar honum er haldið. Yfirvöld hafa frá því í september 2021 einnig bannað fjölskyldu hans að hafa samband við hann.
Hann er ákærður fyrir „jarðneska spillingu” (efsad-e fel-arz) og gæti átt yfir höfði sér dauðarefsingu. Hann hefur ekki fengið sanngjarna málsmeðferð.
Jamshid Sharmahd var búsettur í Bandaríkjunum og talsmaður íransks stjórnarandstöðuhóps í Bandaríkjunum sem hefur það markmið að steypa af stóli íslamska ríkinu og snúa aftur til stjórnarfyrirkomulags Íran fyrir íslam.
Yfirvöld gáfu upp að Jamshid Sharmahd hefði verið handtekinn þann 1. ágúst 2020. Sama dag staðhæfði Mahmoud Alavi, ráðherra leyniþjónustu Íran, að Jamshid Sharmahd hefði fengið „mikinn stuðning frá leyniþjónustum Bandaríkjanna og Ísrael” og verið „ sendur” til Íran í „viðamikla hernaðaraðgerð”. Hann sagði einnig að hann væri í haldi írönsku leyniþjónustunnar. Jamshid hafði verið í Sameinuðu arabísku furstadæmunum og er talið að útsendarar írönsku leyniþjónustunnar hafi numið hann á brott þar og farið með hann til Íran.
Hann var þvingaður til að játa glæpi sem hann hefur áður staðhæft að hann tengdist ekki. Játningin var flutt í ríkissjónvarpi og útvarpi þar sem hann var kallaður hryðjuverkamaður.
Í lok nóvember 2020 sagði Jamshid fjölskyldu sinni í hvaða fangelsi hann væri en í seinni símtölum hafði hann verið færður en vissi ekki hvert. Í einu símtali þann 23. mars 2021 sagðist hann vera búinn að léttast um 20 kíló og búið væri að fjarlægja úr honum nokkrar tennur án útskýringa.
Íran hefur mannréttindaskyldum að gegna og ber að veita öllum réttláta málsmeðferð. Dauðadómur án sanngjarnrar málsmeðferðar gengur á rétt einstaklings til lífs.
Jamshid Sharmahd var handtekinn að geðþótta og því bera að leysa hann úr haldi. Á meðan hann er í haldi ber írönskum stjórnvöldum að tryggja að hann geti haft samband við fjölskyldu og lögfræðing að eigin vali ásamt því að hann fái viðeigandi læknisþjónustu. Auk þess ber þeim að tryggja að hann fái sanngjörn réttarhöld í samræmi við alþjóðlega staðla.
Krefstu þess að írönsk stjórnvöld leysi Jamashid Sharmahd úr haldi.