Þitt nafn bjargar lífi

Þau þurfa á þína hjálp

Alþjóðleg herferð

Þitt nafn bjargar lífi er alþjóðleg herferð Amnesty Internati­onal. Taktu þátt og skrifaðu undir 9 áríð­andi mál einstak­linga sem beittir eru alvarlegum órétti. Þú getur lesið um öll málin hér fyrir neðan.

Hver undir­skrift skiptir máli!

Total: 0

Þau þurfa þína hjálp!

Þín undirskrift getur bjargað mannslífi


Árangur

Ég vil lýsa yfir gífurlegu þakklæti til Amnesty International. Það er erfitt að koma orðum að þakklæti mínu því að stórum hluta er það ykkur að þakka að ég sé hér. Aleksandra Skochilenko – Þitt nafn bjargar lífi 2022.

Frjáls á ný

Aleksandra Skochilenko var uggandi yfir innrásinni í Úkraínu og greip til aðgerða hinn 31. mars 2022. Hún skipti út verðmiðum í stórmarkaði í Sankti-Pétursborg og setti í staðinn upplýsingar um innrásina. Hún var dæmd í 10 ára fangelsi en fékk frelsi sitt á ný í ágúst 2024. Mál hennar var hluti af Þitt nafn bjargar lífi 2022.

Undirskriftasöfnun víða um land

Árið 2001 var herferð­inni Þitt nafn bjargar lífi ýtt úr vör af aðgerða­sinnum í Varsjá í Póllandi ári. Síðan þá hefur herferðin vaxið jafnt og þétt og raunverulegar breytingar á lífi fólks eiga sér stað á hverju ári. Henni hefur tekist að umbreyta lífi rúmlega 100 þolenda.

Án aðgerða­sinna eins og þín sem lætur sig varða líf þeirra sem beittir eru grófu misrétti næðum við ekki árangri í baráttunni gegn mann­rétt­inda­brotum.

Á Íslandi hafa undir­skrifta­safn­anir farið fram víðs vegar um landið, á bókasöfnun, kaffi­húsum, vinnustöðum og í skólum með frábærum árangri.

Segðu vinum og fjöl­skyldu frá undir­skriftasöfn­un­inni og með þinni hjálp getur herferðin orðið enn sýnilegri! 

Þú getur tekið þátt á þeim stöðum sem auglýstir eru hér