Aðalfundur Íslandsdeildar Amnesty International var haldinn 24. mars 2026. Að venju var ársskýrsla deildarinnar flutt, fjárhagur og ársreikningar kynnt og samþykkt á fundinum. Fjárhagsáætlun og starfsáætlun fyrir komandi ár lögð fram til samþykktar. Engar lagabreytingar voru að þessu sinni.
Kosið var til stjórnar 2026-2027
Albert Björn Lúðvígsson, varaformaður, lét af embætti í nóvember 2025 og Tinna Ingvarsdóttir í febrúar 2026. Helena Hafsteinsdóttir gaf ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Cynthia Anne Namugambe bauð sig fram sem meðstjórnandi og Gunnar Hlynur Úlfarsson og Anna Margrét Sigurbergsdóttir buðu sig fram í varastjórn.
STJÓRN 2026 -2027 SKIPA:
Eva Einarsdóttir, formaður
Harpa Pétursdóttir, meðstjórnandi
Pétur Matthíasson, meðstjórnandi
Donika Kolica, meðstjórandi
Cynthia Anne Namugambe, meðstjórnandi
Varastjórn:
Gunnar Hlynur Úlfarsson
Anna Margrét Sigurbergsdóttir
Þakkir
Við þökkum Alberti Birni Lúðvígssyni, Helenu Hafsteinsdóttur og Tinnu Ingvarsdóttur fyrir vel unnin störf í þágu mannréttinda um leið og við bjóðum nýtt fólk í stjórn velkomið.
Við óskum þeim öllum velfarnaðar í nýjum hlutverkum.
Ársskýrsla 2025
Skýrslan í ár er viðameiri en fyrri ár með áhugaverðum viðtölum við fólk sem tengdist starfi okkar árið 2025. Við hvetjum þig til að kynna þér skýrsluna:

