SMS

26. maí 2025

Afgan­istan: Blaða­maður dæmdur í tveggja ára fang­elsi fyrir áróður

Blaða­mað­urinn Hamid Farhadi starfar fyrir sjálf­stætt dagblað sem er starf­rækt í útlegð. Hann var hand­tekinn af yfir­völdum 3. sept­ember 2024 og dæmdur í tveggja ára fang­elsi19. sept­ember án verj­anda.

Hann var ásak­aður um að dreifa áróðri með greinum sínum um stöðu kvenna og stúlkna í landinu. Fjöl­skylda hans má einungis heim­sækja hann einu sinni á mánuði, í hálf­tíma í senn.  

SMS-félagar krefjast þess að Hamid Farhadi verði umsvifa­laust leystur úr haldi án skil­yrða þar sem hann er í haldi fyrir það eitt að nýta mann­rétt­indi sín frið­sam­lega. 

Skráðu þig í SMS-aðgerðanetið hér.

Mynd: Afgönsk kona / © Kiana Hayeri / Amnesty Internati­onal

Lestu einnig