Bandaríkin: Fjölmiðlafólk ákært
Fort og annað fjölmiðlafólk eiga yfir höfði sér alvarlegar ákærur af hálfu bandarískra yfirvalda fyrir þessa fréttaumfjöllun þar á meðal fyrir hatursglæp.
Fort og annað fjölmiðlafólk eiga yfir höfði sér alvarlegar ákærur af hálfu bandarískra yfirvalda fyrir þessa fréttaumfjöllun þar á meðal fyrir hatursglæp.
Milljónir fótboltaaðdáenda munu mæta á heimsmeistaramót í knattspyrnu karla 2026 á vegum Alþjóðaknattspyrnusambandsins FIFA í Kanada, Mexíkó og Bandaríkjunum. Hætta er á að þeir sæti mannréttindabrotum, sérstaklega í ljósi ofbeldisfullrar og banvænnar innflytjendastefnu Bandaríkjanna. Amnesty International varar við því að strangar takmarkanir á tjáningarfrelsinu og friðsamlegum mótmælum geti staðið í vegi fyrir því að mótið verði „öruggt, opið og inngildandi” líkt og FIFA hefur lofað
Öll átta eru sótt til saka á grundvelli tilhæfulausra ákæra sem rekja má til mannréttindastarfs þeirra.
Victoire Ingabire var handtekin í júní 2025 og sökuð um þátttöku í samsæri með hinum níu sem hafa verið í haldi frá október og desember 2021. Þau eru meðal annars ákærð fyrir að „stofna eða ganga til liðs við glæpasamtök, leggja á ráðin gegn stjórnvöldum og hvetja til óeirða eða uppþots meðal almennings“.
Menzi Bongeka Bhembe, 26 ára háskólanemi og aðgerðasinni í Esvatíní, var handtekinn 16. janúar 2024 og ákærður á grundvelli hryðjuverkalaga frá árinu 2008. Hann hefur verið í varðhaldi að geðþótta í rúm tvö ár, sem brýtur gegn réttinum til réttlátrar málsmeðferðar og virðist vera pólitísk þöggun á aðgerðastarfi stúdenta.
Írönsk stjórnvöld hafa með öllu lokað á net- og fjarskiptasamband þar í landi allt frá 8. janúar 2026 í þeim tilgangi að leyna raunverulegu umfangi grófra mannréttindabrota og glæpa samkvæmt alþjóðalögum. Brot yfirvalda hafa verið framin í ofbeldisfullum aðgerðum gegn mótmælendum vítt og breitt um landið.
Dr. Sarah Bireete, mannréttindalögfræðingur, var handtekin að geðþótta 30. desember síðastliðinn og er í haldi í Luzira-fangelsinu í Úganda.
Ibtissame Lachgar („Betty“), marakóskur femínisti og baráttukona fyrir hinsegin réttindum, afplánar 30 mánaða fangelsisdóm. Hún var sakfelld fyrir að „skaða íslam“ fyrir að birta mynd af sér á samfélagsmiðlum í stuttermabol með slagorðinu „Allah er lesbía“.
Bùi Tuấn Lâm, þekktur núðlusali, hefur sætt fangavist frá 2023 í Xuân Lộc fangelsi í Đồng Nai-héraði fyrir myndbönd á samfélagsmiðlum um samfélagsmál og mannréttindi.
Þrátt fyrir miklar áskoranir í heiminum í dag verðum við enn og aftur vitni að mikilvægi mannréttindabaráttunnar. Víða um heim krafðist fólk ábyrgðar frá stjórnvöldum, réttlætis fyrir þolendur kynbundins ofbeldis og frelsis fyrir mannréttindafrömuði. Hér koma góðar fréttir á síðustu sex mánuðum ársins sem veita von og sýna mikilvægi mannúðar og samtakamáttar.
Á annan tug meðlima trúarhópsins Ahmadi Religion of Peace and Light hafa verið handteknir að geðþótta síðustu 7 mánuði fyrir það eitt að nýta trú- og hugsanafrelsi sitt.
Humphrey Polepole var rænt í Dar es Salaam þann 6. október 2025 af óþekktum fulltrúum öryggissveita.