SMS

1. september 2020

Banda­ríkin felli niður ákærur á hendur Julian Assange

Banda­rísk yfir­völd verða að fella niður allar ákærur á hendur Julian Assange sem tengjast njósnum og birt­ingu gagna vegna starfa hans hjá Wiki­leaks. Miskunn­ar­lausar tilraunir banda­rískra stjórn­valda til að hafa hendur í hári Julian Assange vegna opin­ber­unar gagna sem inni­héldu meðal annars upplýs­ingar um mögu­lega stríðs­glæpi banda­ríska hersins eru alvarlegar árásir gegn rétt­inum til tján­ing­ar­frelsis. 

Skráðu þig í sms-aðgerðanetið hér! Sendu svo AKALL í númerið 1900 til að skrifa undir málið.

Julian Assange er í haldi í Belm­arsh örygg­is­fang­elsinu í Bretlandi á grund­velli framsals­beiðni Banda­ríkj­anna. Amnesty Internati­onal leggst alfarið gegn því að Julian Assange verði fram­seldur eða fluttur með einum eða öðrum hætti til Banda­ríkj­anna. Julian Assange gæti átt á hættu varð­haldsvist við aðstæður sem teljast til pynd­inga og annarrar illrar meðferðar, t.d. einangrunarvist. Í ljósi háværrar opin­berrar umræðu embætt­is­fólks í efstu lögum stjórn­sýsl­unnar gegn honum er mikil hætta á ósann­gjörnum rétt­ar­höldum sem grefur alvar­lega undan rétti Julian Assange til að vera álitinn saklaus uns sekt er sönnuð. 

Krefstu þess að banda­rísk stjórn­völd felli niður ákærur á hendur Julian Assange sem tengjast eingöngu birt­ingu gagna á Wiki­leaks.  

Julian Assange birti trún­að­ar­gögn í tengslum við störf sín hjá Wiki­leaks. Slík birting á ekki að vera refsi­verð og svipar til starfa fjöl­miðla­fólks sem reglu­lega rann­sakar mál í starfi sínu. Þessar ákærur gætu haft hroll­vekj­andi afleið­ingar fyrir tján­ing­ar­frelsið og leitt til þess að fjöl­miðla­fólk ritskoði sjálft sig af ótta við málsókn.  

Verndum tján­ing­ar­frelsið!  

Lestu meira um málið hér

Lestu einnig