SMS
17. desember 2020Blaðakonan Zhang Zhan frá Wuhan sem fjallaði um efni tengt kórónuveirufaraldrinum er í haldi og ákærð fyrir að „ýta undir erjur og vandræði”. Zhang Zhan hvarf í Wuhan þann 15. maí og síðar kom í ljós að hún var í haldi lögreglunnar í Shanghai í meira en 640 km fjarlægð.
Zhang hefur verið þvinguð til að borða eftir að hún hóf hungurverkfall. Hún hefur verið hlekkjuð niður og hendur hennar bundnar allan sólarhringinn í meira en þrjá mánuði. Óttast er um heilsu hennar og að hún sæti frekari pyndingum.
Sms-félagar krefjast þess að Zhang Zhan verði leyst tafarlaust úr haldi.
Lestu einnig
Þú ætlar að styðja og .
Skrifaðu undir og Amnesty á Íslandi sendir viðeigandi aðilum bréf í þínu nafni. Engar aðrar persónuupplýsingar en nafn þitt munu fylgja bréfinu á viðkomandi stjórnvöld.
Með því að skrifa undir málin samþykkir þú skilmála Íslandsdeildar Amnesty International um undirskriftir og persónuverndarstefnu