ESVATÍNÍ: NEMI OG AÐGERÐASINNI Í FANGELSI Á GRUNDVELLI HRYÐJUVERKALAGA 

Menzi Bongeka Bhembe, 26 ára háskólanemi og aðgerðasinni í Esvatíní, var handtekinn 16. janúar 2024 og ákærður á grundvelli hryðjuverkalaga frá árinu 2008. Hann hefur verið í varðhaldi að geðþótta í rúm tvö ár, sem brýtur gegn réttinum til réttlátrar málsmeðferðar og virðist vera pólitísk þöggun á aðgerðastarfi stúdenta.

SMS-félagar krefjast þess að yfirvöld í Esvatíní leysi Menzi Bongeka Bhembe tafarlaust úr haldi, án skilyrða, og felli niður allar ákærur á hendur honum, þar sem hann er í haldi eingöngu fyrir að nýta mannréttindi sín með friðsamlegum hætti.