SMS
7. október 2020Síðan árið 2018 hafa milljónir manna mótmælt á götum Frakklands. Fólk hefur mótmælt stefnu ríkisstjórnarinnar sem er sögð ýta undir félagslegan og hagfræðilegan ójöfnuð, aðgerðaleysi stjórnvalda við loftslagsbreytingum og umbótum á eftirlaunakerfinu. Stjórnvöld hafa brugðist við með valdi gegn mótmælendum.
Skráðu þig í sms-aðgerðanetið hér! Sendu svo AKALL í númerið 1900 til að skrifa undir málið.
Þátttaka í mótmælum í Frakklandi í dag felur í sér mikla hættu á að slasast alvarlega af völdum gúmmíkúla eða notkun annarra vopna sem lögregla notast við. Þúsundir friðsamra mótmælenda hafa verið sektaðir, handteknir og sóttir til saka. Þetta eru brot á mannréttindum þeirra.
Undanfarin ár hafa mótmæli verið bönnuð og þeir sem gagnrýna stjórnvöld ofsóttir. Almennir borgarar í Frakklandi eru því farnir að óttast lögreglu og taka síður þátt í mótmælum.
Þátttaka í mótmælum hefur verið hluti af menningu Frakka í margar aldir. Macron, Frakklandsforseti, einsetti sér að vernda fundarfrelsi árið 2017, hinsvegar hafa þessi réttindi aldrei fyrr verið í eins mikilli hættu og nú.
SMS-félagar krefjast þess að frönsk stjórnvöld verndi funda– og tjáningarfrelsið.
Lestu nánar um stöðu tjáningarfrelsisins í Frakklandi hér
Lestu einnig
Þú ætlar að styðja og .
Skrifaðu undir og Amnesty á Íslandi sendir viðeigandi aðilum bréf í þínu nafni. Engar aðrar persónuupplýsingar en nafn þitt munu fylgja bréfinu á viðkomandi stjórnvöld.
Með því að skrifa undir málin samþykkir þú skilmála Íslandsdeildar Amnesty International um undirskriftir og persónuverndarstefnu