Fréttir
5. ágúst 2021Íþróttafólk í Hvíta-Rússlandi fórnar nú íþróttaferli sínum og frelsi fyrir það eitt að tjá sig um mannréttindabrot í heimalandi sínu. Amnesty International stendur fyrir herferðinni #StandWithBelarus til að sýna íþróttafólkinu í Hvíta-Rússlandi stuðning í mannréttindabaráttu þess. Krystsina Tsimanouskaya, íþróttakona frá Hvíta-Rússlandi og þátttakandi á Ólympíuleikunum í Japan í ár óskaði eftir alþjóðlega vernd í pólska sendiráðinu í Tókýó þann 2. ágúst 2021 í kjölfar þess að hvítrússnesk yfirvöld reyndu að þvinga hana aftur til heimalands síns.
Íþróttafólk sem Amnesty International hefur rætt við segir að því hafi verið refsað vegna þess að íþróttir eru afar hugleiknar forseta landsins Alyaksandr Lukashenka. Hann er sjálfur áhugaleikmaður í íshokkí og þar til í desember 2020 fór hann fyrir Ólympíunefnd Hvíta-Rússlands.
Íþróttafólk lætur heyra í sér
„Íþróttanefndir í Hvíta-Rússlandi hafa verið undir beinni stjórn ríkisstjórnar Alyaksandr Lukahshenka. Íþróttafólk nýtur velvildar ríkisins og virðingar samfélagsins. Það kemur því ekki á óvart að íþróttafólk sem lætur í sér heyra eigi á hættu refsingu,”
Heather McGill, rannsakandi Amnesty International í Austur-Evrópu og Mið-Asíu.
Fjöldi íþróttafólks, rúmlega eitt þúsund, skrifaði undir opið bréf í ágúst 2020 þar sem kallað var eftir nýjum kosningum, að beitingu pyndinga og annarri illri meðferð yrði hætt og handtökur á friðsömum mótmælendum stöðvaðar. Það leið ekki langur tími þar til ríkisstjórnin beitti hefndaraðgerðum.
Samkvæmt Sport Solidarity Foundation, óháðum samtökum til stuðnings íþróttafólks sem hefur verið refsað fyrir pólitískar skoðanir sínar, hafa 95 einstaklingar í íþróttum verið handteknir fyrir þátttöku í friðsömum mótmælum í Hvíta-Rússlandi, þar af hafa sjö verið ákærðir fyrir pólitísk brot vegna friðsamrar andstöðu við ríkisstjórnina. Auk þess hafa 124 einstaklingar í íþróttum sætt annars konar kúgun. meðal annars hafa 35 einstaklingar verið reknir úr landsliðinu, bæði íþróttafólk og þjálfarar.
Sögur tveggja íþróttakvenna
Alyaksandra Herasimienia, þrefaldur ólympíuverðlaunahafi í sundi sem hefur rekið sundskóla fyrir börn síðastliðin tvö ár eftir að hún hætti að keppa fannst hún þurfa að láta í sér heyra á samfélagsmiðlum en stóð frammi fyrir erfiðu vali. Þetta sagði hún Amnesty International:
„Ég hafði val um að láta í mér heyra eða þegja. Við leigjum sundlaugar af ríkinu fyrir námskeiðin okkar. Allar sundlaugar í Hvíta-Rússlandi eru í eigu ríkisins svo ég vissi að ef ég myndi tjá mig fengi samstarfsfólk mitt að líða fyrir það og börnin líka. Í fyrstu vissi ég ekki hvað ég ætti að gera en eftir nokkra daga áttaði ég mig á því að ég gæti ekki þagað.“ Eins og búast mátti við fékk hún ekki lengur að leigja sundlaugar í Hvíta-Rússlandi.
Alyaksandra leitaði til Sport Solidarity Foundation sem þrýsti á alþjóðlegu Ólympíunefndina með góðum árangri því nýr aðili, í stað Alyaksandr Lukashenka, var fenginn til að taka við sem formaður Ólympíunefndarinnar í Hvíta-Rússlandi. Einnig var séð var til þess að ýmsir alþjóðlegir íþróttaviðburðir yrðu ekki haldnir í Hvíta-Rússlandi.
Yelena Leuchanka, ein þekktasta íþróttakona Hvíta-Rússlands og tvöfaldur ólympíuverðlaunahafi í körfubolta, fannst hún þurfa tjá sig um það sem væri að gerast í Hvíta-Rússlandi og skrifaði undir opna bréfið til stjórnvalda og tjáði skoðanir sínar á samfélagsmiðlum. Hún var handtekin þann 20. september 2020 á flugvellinum í Minsk þegar hún var á leið til Grikklands í læknismeðferð vegna íþróttameiðsla. Hún var 15 daga í varðhaldi í alræmdri varðhaldsmiðstöð í Minsk og segir Amnesty International að séð hefði verið til þess að hún dveldi við slæman aðbúnað í klefa sínum.
„Fyrstu nóttina vorum við með dýnur, vatn og klósett en tveimur dögum síðar breyttist allt. Eftir morgunmat komu verðir inn og skipuðu okkur að rúlla upp dýnunum. Fyrst héldum við að það væri verið að fjarlægja dýnurnar til að eyða flóm og veggjalús en við fengum þær aldrei aftur.“
Yelena var 15 daga í fjögurra manna klefa en mest allan tímann voru fimm einstaklingar í klefanum. Hún og klefafélagar hennar voru neydd til að sofa á rúmgrindinni og reyndu að nota föt, dagblöð og dömubindi til að minnka óþægindin. Þeim var sagt af yfirmanni varðhaldsmiðstöðvarinnar að þetta væri með vilja gert „til að tryggja að þau myndu ekki koma aftur“.
Lestu einnig
Þú ætlar að styðja og .
Skrifaðu undir og Amnesty á Íslandi sendir viðeigandi aðilum bréf í þínu nafni. Engar aðrar persónuupplýsingar en nafn þitt munu fylgja bréfinu á viðkomandi stjórnvöld.
Með því að skrifa undir málin samþykkir þú skilmála Íslandsdeildar Amnesty International um undirskriftir og persónuverndarstefnu