Ísrael/hernumda svæðið í Palestínu: Fella þarf ný lög um dauðarefsingu úr gildi

Ísraelsk yfirvöld verða að fella úr gildi lagabreytingu sem víkkar út heimild fyrir beitingu dauðarefsingarinnar og samþykkt var á þingi Ísraels í lok mars. Lagabreytingin sem bætt var við hegningarlög Ísraels, þekkt sem „dauðarefsing fyrir hryðjuverkamenn“, auðveldar beitingu dauðarefsingarinnar á tímum þegar þróunin á heimsvísu er í átt að afnámi hennar.

Nýju lögin búa beinlínis til tvo lagaramma varðandi beitingu dauðarefsingarinnar, annars vegar í Ísrael og hins vegar á hernumda Vesturbakkanum, að Austur-Jerúsalem undanskilinni sem var innlimuð inn í Ísrael með ólögmætum hætti. Herdómstólar á hernumda Vesturbakkanum fá heimild til að beita dauðarefsingunni gegn Palestínubúum sem sakfelldir eru fyrir morð af ásettu ráði í tengslum við verknaði sem skilgreindir eru hryðjuverk samkvæmt óréttlátum hryðjuverkalögum Ísraels sem fela í sér mismunun. Aðeins við sérstakar aðstæður, sem ekki eru tilgreindar í frumvarpinu, verður dómstólum heimilt að dæma í lífstíðarfangelsi í staðinn fyrir dauðadóm.

Varnarmálaráðuneytinu er heimilt að ákveða hvort sakborningar frá Vesturbakkanum verði dregnir fyrir herdómstóla eða borgaralega dómstóla. Einstaklingar sem dæmdir verða til dauða eiga ekki rétt á náðun. Þetta eru því ein öfgafyllstu lög um dauðarefsinguna sem fyrirfinnast í heiminum.

„Herdómstólar, sem sakfella 99% palestínskra sakborninga og eru alræmdir fyrir að skeyta ekki um sanngjarna málsmeðferð og sanngjörn réttarhöld, fá með þessu í raun heimild til að gera dauðarefsinguna að skyldu og fyrirskipa aftöku innan við 90 daga frá síðasta dómsúrskurði. Ísrael gefur sér blygðunarlaust frjálsar hendur til að taka Palestínubúa af lífi með því að taka í burtu grundvallarvernd fyrir sanngjörn réttarhöld.“

Erika Guevara-Rosas, sem stýrir rannsóknum, hagsmunagæslu, stefnumótun og herferðum Amnesty International

Seinni lagaramminn gildir í Ísrael og Austur-Jerúsalem. Þar fá borgaralegir dómstólar víðtækari heimild til að kveða upp dauðadóm yfir hverjum þeim sem sakfelldur er fyrir morð af ásettu ráði „í þeim tilgangi að afneita tilvist Ísraelsríkis“. Þessi krafa um hugmyndafræðilegan ásetning er í reynd hönnuð til að beinast gegn Palestínubúum.

„Þrátt fyrir nokkrar breytingar frá fyrri drögum yrðu allir dauðadómar, kveðnir upp á grundvelli þessara laga, brot á réttinum til lífs og dauðadómar gegn Palestínubúum frá hernumda svæðinu gætu talist stríðsglæpir. Alþjóðasamfélagið verður að beita ísraelsk yfirvöld hámarksþrýstingi til að fella þessi lög úr gildi án tafar, afnema dauðarefsinguna að fullu og þau lög og stefnur sem stuðla að aðskilnaðarstefnu gegn Palestínubúum.“

Erika Guevara-Rosas, sem stýrir rannsóknum, hagsmunagæslu, stefnumótun og herferðum Amnesty International