Leysa þarf palestínskan mannréttindafrömuð úr geðþóttavarðhaldi í Ísrael
Skráði mannréttindabrot
Skráði mannréttindabrot
Á innan við tíu mínútum réðst Ísrael á hundrað staði í Líbanon þar sem hundruð létu lífið og særðust. Árásirnar áttu sér stað 8. apríl sem var mannskæðasti dagurinn í síðustu lotu árása sem hófst 2. mars. Gerðar voru linnulausar loftárásir í suðurhluta Líbanon, í Beqaa-dalnum og á fjölmennum svæðum í Beirút, án nokkurrar viðvörunar. Sjúkrahús sendu frá sér neyðarkall til að óska eftir blóðgjöfum vegna gífurlegs fjölda særðra. Aðeins örfáum klukkustundum eftir að heimurinn fagnaði af varfærni fréttum af vopnahléi Bandaríkjanna og Ísrael við Íran varð staða óbreyttra borgara í Líbanon enn skelfilegri.
Ísraelsk yfirvöld verða að fella úr gildi lagabreytingu sem víkkar út heimild fyrir beitingu dauðarefsingarinnar og samþykkt var á þingi Ísraels í lok mars. Lagabreytingin sem bætt var við hegningarlög Ísraels, þekkt sem „dauðarefsing fyrir hryðjuverkamenn“, auðveldar beitingu dauðarefsingarinnar á tímum þegar þróunin á heimsvísu er í átt að afnámi hennar.
Stigvaxandi átök eiga sér stað í Mið-Austurlöndum í kjölfar árása Bandaríkjanna og Ísraels á Íran, sem svaraði fyrir sig með hefndarárásum víðs vegar um svæðið. Amnesty International kallar eftir því að allir aðilar verndi óbreytta borgara, virði alþjóðleg mannúðarlög og stöðvi ólögmætar árásir eins og árásir af ásettu ráði, handahófskenndar árásir og óhóflegar árásir á óbreytta borgara og borgaralegar eignir.
Í kjölfar nýafstaðins aðildarríkjaþings Alþjóðlega sakamáladómstólsins (ICC) kallar Amnesty International eftir því að ríki heims skuldbindi sig að tryggja alþjóðlegt réttlæti fyrir alla þolendur, bæði á hernumda svæðinu í Palestínu og í Ísrael, vegna stríðsglæpa, glæpa gegn mannúð og hópmorðs.
Þrátt fyrir að vopnahlé var tilkynnt í byrjun október og öllum ísraelskum gíslum sem voru enn á lífi hefur verið sleppt halda ísraelsk yfirvöld áfram að fremja hópmorð á Palestínubúum á Gaza. Palestínubúum er áfram þröngvað til að búa við lífskilyrði sem miða að líkamlegri eyðingu hópsins, og ísraelsk yfirvöld hafa ekki sýnt nein merki um að ásetningur þeirra hafi breyst.
Palestínski læknirinn Hussam Abu Safiya er framkvæmdastjóri Kamal Adwan-spítalans og hefur tjáð sig um hrun heilbrigðiskerfisins á Gaza. Hann var handtekinn að geðþótta af ísraelskum yfirvöldum 27. desember 2024 og hefur verið í haldi síðan.
Ísrael og Hamas hafa samþykkt fyrsta áfanga um vopnhlé sem að sögn felur í sér að hleypa mannúðaraðstoð inn á Gaza á fimm stöðum, leysa alla lifandi ísraelska og erlenda gísla sem eru í haldi á Gaza í skiptum fyrir palestínska fanga og að Ísraelsher dragi sig að hluta til baka á Gaza. Amnesty International hefur meðal annars þetta um málið að segja.
Palestínskir vopnaðir hópar verða að leysa úr haldi óbreytta borgara sem er haldið í gíslingu skilyrðislaust og án tafar. Amnesty International ítrekar þessa kröfu nær tveimur árum eftir að óbreyttir borgarar voru teknir í gíslingu í árásum sem Hamas leiddi í suðurhluta Ísrael þann 7. október 2023.
Ríki, opinberar stofnanir og fyrirtæki um heim allan gera Ísrael kleift eða hagnast á því að Ísrael hafi til langs tíma brotið alþjóðalög og má þar nefna yfirstandandi hópmorð á Palestínubúum á Gaza, ólögmætt hernám á palestínsku svæði og grimmilega aðskilnaðarstefnu gegn öllum Palestínubúum. Þessir aðilar eru ýmist samsekir Ísrael, veita því stuðning eða telja sig ekki geta gert neitt í stöðunni. Þetta kemur fram í nýútkominni skýrslu Amnesty International.
Ísrael fremur hópmorð (e. genocide) á Palestínubúum á Gaza. Við krefjumst þess að alþingismenn á Íslandi geri allt sem í þeirra valdi stendur til að stöðva það.
Íslandsdeild Amnesty International tók þátt í fjöldafundinum Þjóð gegn þjóðarmorði á Austurvelli laugardaginn 6. september. Fjölmörg samtök, félög og verkalýðsfélög stóðu að baki fundinum og voru þátttökufélögin vel á annað hundrað.