SMS

30. október 2024

Mexíkó: Baráttu­kona fyrir mann­rétt­indum hvarf spor­laust

Baráttu­konan Sandra Domínguez og eigin­maður hennar Alex­ander Hernández hurfu spor­laust. Ættingjar Söndru tilkynntu ríkis­sak­sóknara í Oaxaca-héraði að hjónin höfðu síðast sést á heimili sínu í María Lomb­ardo de Caso, í suður­hluta Oaxaca-héraðs í Mexíkó, 4. október 2024.

Samkvæmt yfir­völdum á svæðinu fannst bíll hjón­anna í Veracruz-héraði þar sem þeirra er leitað.

Sandra starfar sem lögfræð­ingur við að sækja mál sem tengjast ofbeldi gegn konum. Árið 2020 fordæmdi hún yfir­völd á svæðinu opin­ber­lega fyrir að deila kynferð­is­legum myndum af frum­byggja­konum.

SMS-félagar krefjast þess að ríkis­stjóri Oaxaca geri allar nauð­syn­legar ráðstaf­anir og nýti öll úrræði til að finna Söndru Dominguez og eigin­mann hennar á lífi í samráði við ættingja þeirra og þau yfir­völd á svæðinu sem bera ábyrgð á leit­inni, auk þess að yfir­völd dragi til saka þá sem bera ábyrgð á hvarfinu.

Lestu einnig