Bandaríkin: Fjölmiðlafólk ákært
Fort og annað fjölmiðlafólk eiga yfir höfði sér alvarlegar ákærur af hálfu bandarískra yfirvalda fyrir þessa fréttaumfjöllun þar á meðal fyrir hatursglæp.
Fort og annað fjölmiðlafólk eiga yfir höfði sér alvarlegar ákærur af hálfu bandarískra yfirvalda fyrir þessa fréttaumfjöllun þar á meðal fyrir hatursglæp.
Milljónir fótboltaaðdáenda munu mæta á heimsmeistaramót í knattspyrnu karla 2026 á vegum Alþjóðaknattspyrnusambandsins FIFA í Kanada, Mexíkó og Bandaríkjunum. Hætta er á að þeir sæti mannréttindabrotum, sérstaklega í ljósi ofbeldisfullrar og banvænnar innflytjendastefnu Bandaríkjanna. Amnesty International varar við því að strangar takmarkanir á tjáningarfrelsinu og friðsamlegum mótmælum geti staðið í vegi fyrir því að mótið verði „öruggt, opið og inngildandi” líkt og FIFA hefur lofað
Draga verður til ábyrgðar þá aðila sem bera ábyrgð á skipulagningu og framkvæmd ólögmætrar árásar Bandaríkjanna á skóla í borginni Minab í Hormozgan-héraði í Íran þar sem 168 manns létust, þar á meðal rúmlega 100 börn.
Tveir ICE-liðar skutu tvo óbreytta borgara í Minneapolis í Minnesota innan þriggja vikna. Renee Macklin Good var skotin til bana 7. janúar þegar hún fylgdist með innflytjendayfirvöldum í sínu hverfi og Alex Pretti var skotin til bana 24. janúar á meðan hann tók myndband af ICE-liða ráðast á manneskju.
Hervæðing leiðir til dauða
Á afskekktum stað
Hernaðaraðgerðir bandarískra stjórnvalda í Venesúela undir forystu Donalds Trump Bandaríkjaforseta, sem leiddu til handtöku Nicolás Maduro og Cilia Flores, eru til marks um alvarlega ógn við mannréttindi íbúa landsins.
Nú þegar COP30, árleg loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna, stendur yfir í Belém í Brasilíu kallar Amnesty International eftir því að leiðtogar á COP30 hafi fólk í fyrirrúmi í öllum samningaviðræðum í stað hagnaðar og valds. Þeir verða að skuldbinda sig til að grípa til nauðsynlegra aðgerða í þágu loftslagsmála með því að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis af fullum þunga á réttlátan hátt og tryggja réttlát orkuskipti með sjálfbærri orku fyrir alla á öllum sviðum.
Um heim allan streyma ungmenni, svokölluð Z-kynslóðin, út á götur til að berjast fyrir réttindum sínum. Í Madagaskar mótmæla þau ítrekuðum vatnsskorti og rafmagnsleysi. Í Perú er réttinum til þungunarrofs ógnað. Í Indónesíu hafa ungmenni látið í sér heyra gegn aukinni valdboðsstefnu stjórnvalda.
Frá því að Mahmoud Khalil var handtekinn að geðþótta þann 8. mars 2025 fyrir þátttöku í mótmælunum við Columbia-háskólann hafa yfirvöld herjað á a.m.k. níu aðra nemendur fyrir það eitt að nýta tjáningarfrelsið og fundafrelsi friðsamlega.
Mario Guevara, fjölmiðlamaður frá El Salvador sem býr í Bandaríkjunum, var handtekinn og ákærður fyrir minniháttar brot á mótmælum gegn valdboðsstefnu ríkisstjórnar Trumps „No Kings“ þann 14. júní 2025.
Dómari í Bandaríkjunum fyrirskipaði að leysa Mahmoud Khalil úr haldi gegn tryggingu en hann var þrjá mánuði í ólögmætu haldi. Hann er palestínskur aðgerðasinni með ótímabundið dvalarleyfi í Bandaríkjunum og lauk nýlega námi við Columbia-háskólann.