Fréttir
1. mars 2019Ert þú á aldrinum 16-24 ára og hefur áhuga á að leggja mannréttindabaráttunni lið?
Í júlí ár hvert koma saman fulltrúar ungliðahreyfinga Amnesty International á Norðurlöndunum sem brenna fyrir mannréttindi og betri heimi. Um 50 ungmenni frá Svíþjóð, Noregi, Íslandi, Danmörku, Finnlandi og Færeyjum verja einni viku saman í að fræðast, deila reynslu og stofna til aðgerða með málefni ráðstefnunnar hverju sinni að leiðarljósi. Þetta er án efa hápunktur ungliðastarfsins ár hvert og frábært tækifæri til að kynnast starfi Amnesty, nýju fólki og sækja innblástur fyrir mannréttindabaráttunni.
Ráðstefnan í ár fer fram dagana 29. júlí – 2. ágúst og verður haldin í Tollare skammt fyrir utan Stokkhólm í Svíþjóð. Staðsetningin er frábær. Þar er vatn til að synda í, fallegt grænt svæði þar sem hægt er að njóta útiveru og slaka á.
Þema Nordic Youth Conference 2019 tekur mið af væntanlegri skýrslu Amnesty International og herferð samtakanna varðandi lög um upplýst samþykki við skilgreiningu kynferðisbrota í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi. Á ráðstefnunni verður fjallað um hvernig löggjöfin er í hverju landi fyrir sig, hvernig við getum þrýst á stjórnvöld að gera lagabreytingar og hvernig þátttaka ungra aðgerðasinna getur haft áhrif.
Umsóknir skal senda á netfangið hera@amnesty.is
Umsóknarfresturinn er runninn út
Gagnlegar upplýsingar:
„Ótrúleg og gefandi upplifun sem styrkir mann í baráttu fyrir mannréttindum og í daglegu lífi.“
– Þórkatla Haraldsdóttir, ungliðhreyfingin á Norðurlandi og þátttakandi á NYC 2018
„Ferð sem fyllir mann af innblæstri og hugmyndum ásamt því að vera fullkominn vettvangur til að eignast góða vini“
– Sigrún Alúa, ungliðahreyfingin á höfuðborgarsvæðinu og þátttakandi á NYC 2018
„NYC er einstakt tækifæri fyrir þá sem vilja rækta aktívistann innra með sér og víkka sjóndeildarhringinn. Ég sneri til baka reynslunni ríkari og full af baráttugleði!“
– Arndís Ósk, ungliðahreyfingunni á Austurlandi og þátttakandi á NYC 2018
Lestu einnig
Þú ætlar að styðja og .
Skrifaðu undir og Amnesty á Íslandi sendir viðeigandi aðilum bréf í þínu nafni. Engar aðrar persónuupplýsingar en nafn þitt munu fylgja bréfinu á viðkomandi stjórnvöld.
Með því að skrifa undir málin samþykkir þú skilmála Íslandsdeildar Amnesty International um undirskriftir og persónuverndarstefnu