Rúanda: Tíu í haldi fyrir friðsamleg sjórnmálastörf

Victoire Ingabire, leiðtogi stjórnarandstöðuflokksins Development and Liberty for All (DALFA-Umurinzi) í Rúanda, ásamt átta öðrum flokksmönnum og einum fjölmiðlamanni, voru handtekin að geðþótta og sæta ákærum fyrir friðsamleg stjórnmálastörf sín.

Victoire Ingabire var handtekin í júní 2025 og sökuð um þátttöku í samsæri með hinum níu sem hafa verið í haldi frá október og desember 2021. Þau eru meðal annars ákærð fyrir að „stofna eða ganga til liðs við glæpasamtök, leggja á ráðin gegn stjórnvöldum og hvetja til óeirða eða uppþots meðal almennings“.

SMS-félagar Amnesty krefjast þess að yfirvöld í Rúanda leysi þau öll tíu tafarlaust úr haldi þar sem þau eru í haldi fyrir það eitt að nýta mannréttindi sín á friðsamlegan hátt.