Yfirstandandi átök í Súdan á milli súdanska hersins (SAF) og hersveita RFS (Rapid Support Forces) hafa hrakið milljónir á flótta. Sameinuðu arabísku furstadæmin eru meðal þeirra aðila sem eiga þátt í að kynda undir átökin með því að senda vopn og annan herbúnað til Súdan. Hersveitir RFS hafa notað sum þessara vopna og herbúnað í Darfúr þar sem framin hafa verið fjölmörg mannréttindabrot og brot á alþjóðlegum mannúðarlögum. Vopnaflutningar til Darfúr eru augljóst brot á vopnasölubanni öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.
Vaxandi átök
Íbúar Súdan upplifa sig gleymda í vaxandi ofbeldi í landinu þar sem stríðandi fylkingar eiga sök á gríðarlegu mannfalli og eyðileggingu. Íbúarnir eru fastir í miðjum átökunum og hafa hvorki aðgang að mat, vatni né heilbrigðisþjónustu. Skertur aðgangur að netinu þýðir að óbreyttir borgarar hafa engan aðgang að upplýsingum um öruggar flóttaleiðir eða hvar hægt er að finna lyf. Stríðandi fylkingar hafa háð stríð frá árinu 2023 og að mestu virt að vettugi mannréttindi og alþjóðleg mannúðarlög.
Grimmdarverk í El Fasher og Zamzam
Hersveitir RSF tóku yfir borgina El Fasher þann 26. október 2025. Í kjölfarið drápu liðsmenn RFS óbreytta borgara í stórum stíl, beittu konur og stúlkur kynferðisofbeldi og tóku gísla fyrir lausnarfé. Í tengslum við þessa árás þurrkuðu hersveitir RFS heilu þorpin út í kringum El Fasher á kerfisbundinn hátt. Annað dæmi er stórfelld árás í apríl 2025 á Zamzam-flóttamannabúðirnar, þær stærstu í Norður-Darfúr fyrir fólk á flótta. Í árásinni á búðirnar og í kjölfar hennar drápu hersveitir RFS og bandamenn þeirra óbreytta borgara af ásettu ráði, rændu og eyðilögðu eignir ásamt því að taka gísla.
SMS-félagar krefjast þess að Sameinuðu arabísku furstadæmin hætti öllum vopnaflutningum til hersveita RFS í Darfúr og verndi óbreytta borgara í Darfúr.


