Súdan: Þörf á auknu fjármagni til mannúðaraðstoðar
Þrjú ár eru liðin frá því að stríðsátök hófust milli RFS-hersveita og súdanska hersins auk bandamanna þeirra sem hófust 15. apríl 2023. Átökin hafa skapað mikla mannúðarneyð í Súdan en rúmlega 33 milljónir einstaklinga þurfa á aðstoð að halda. Niðurskurður á þróunaraðstoð setur í hættu verkefni sem takast á við alvarlegar heilsufarsógnir, þar á meðal vannæringu, kóleru, áföll og áverka.

