Yfirlýsing
18. desember 2023Í kjölfar umræðu í samfélaginu um brottvísanir barna til Grikklands vill Íslandsdeild Amnesty International koma eftirfarandi yfirlýsingu á framfæri. Nú eru 75 ár síðan Mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna var samþykkt. Í fjórtándu grein hennar segir: „Rétt skal mönnum vera að leita og njóta griðlands erlendis gegn ofsóknum.“ Réttur flóttamanna er tryggður í alþjóðasamningum og er þeirra mikilvægastur flóttamannasamningur Sameinuðu þjóðanna frá árinu 1951. Þá ber að nefna að íslensk stjórnvöld fullgiltu Barnasáttmálann árið 1992 og lögfestu árið 2013.
Áhyggjuefni
Það er mikið áhyggjuefni að íslensk yfirvöld taka ítrekað umsóknir um alþjóðlega vernd ekki til efnislegrar meðferðar og senda þess í stað umsækjendur til Grikklands. Aðbúnaður flóttafólks í Grikklandi hefur m.a. verið gagnrýndur af Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, Amnesty International og Mannréttindavaktinni (e. Human Rigths Watch).
Fjölmargar heimildir, svo sem skýrslur Evrópuráðsins, og mannréttinda- og frjálsra félagasamtaka gefa til kynna að raunverulegri stöðu flóttafólks í Grikklandi sé verulega ábótavant. Í úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 513/2021 kemur beinlínis fram að það sé mat hennar að það sé ljóst af fyrirliggjandi gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafi alþjóðlega vernd í Grikklandi lifi oft á jaðri samfélagsins og búi í sumum tilvikum við félagslega einangrun.
Þá er brýnt að benda á að mikilvægt er að taka sérstaklega tillit til stöðu og þarfa barna við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd. Það er staðreynd að staða barna í neyð og á flótta er sérstaklega viðkvæm. Í 3. gr. Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna segir enn fremur að þegar félagsmálastofnanir á vegum hins opinbera eða einkaaðila, dómstólar, stjórnvöld eða löggjafarstofnanir gera ráðstafanir sem varða börn skal það sem barni er fyrir bestu ávallt hafa forgang.
Stjórnvöld eiga að tryggja að hagsmunir barna séu ávallt hafðir að leiðarljósi og staðir sem ætlaðir eru börnum uppfylli einnig þær skyldur. Mikilvægt er að hagmunamatið byggist á því hvað börnum er raunverulega fyrir bestu. Þrátt fyrir að barn hafi hlotið vernd í öðru landi er ekki þar með sagt að sú vernd sé betri eða jafn góð þeirri sem því væri veitt hér á landi.
Hvatning Íslandsdeildar
Jafnframt ber yfirvöldum að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef viðkomandi hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Með sérstökum ástæðum er átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan.
Skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki.
Ekki má flytja barn sem sótt hefur um alþjóðlega vernd til viðtökuríkis ef veigamikil rök standa til þess að raunveruleg hætta sé á að það sæti þar eða við flutninginn ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð.
Sú er staðan ef sinnuleysi stjórnvalda viðtökuríkis hefur þær afleiðingar að einstaklingur sem að öllu leyti er háður stuðningi ríkisins, t.d. vegna sérstaklega viðkvæmrar stöðu sökum aldurs, verður í slíkri stöðu sárafátæktar að hann geti ekki mætt grundvallarþörfum sínum, og sem grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn.
Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í viðtökuríki og einstaklingsbundinna aðstæðna hvetur Íslandsdeild Amnesty International íslensk yfirvöld til að endurskoða stranga stefnu sína um að taka ekki til efnislegrar meðferðar mál einstaklinga í sérstaklega viðkvæmri stöðu, og þá sérstaklega barna, sem sótt hafa um alþjóðlega vernd á Íslandi ef þeim hefur verið veitt hún í Grikklandi.
Lestu einnig
Þú ætlar að styðja og .
Skrifaðu undir og Amnesty á Íslandi sendir viðeigandi aðilum bréf í þínu nafni. Engar aðrar persónuupplýsingar en nafn þitt munu fylgja bréfinu á viðkomandi stjórnvöld.
Með því að skrifa undir málin samþykkir þú skilmála Íslandsdeildar Amnesty International um undirskriftir og persónuverndarstefnu