Andorra: Baráttukona fyrir réttindum kvenna á yfir höfði sér réttarhöld
Baráttukonan Vanessa Mendoza Cortés gæti bráðlega þurft að koma fyrir rétt þar sem hún talaði fyrir réttindum kvenna í Andorra, þar á meðal réttindum til þungunarrofs, á vettvangi Sameinuðu þjóðanna árið 2019. Hún á yfir höfði sér háa sekt og að vera sett á sakaskrá verði hún fundin sek.

