Síur í notkun

4 niðurstöður

  • Ekvador: Gasbrunar í Amazon-skóginum ógna mannréttindum

    Samkvæmt nýrri skýrslu Amnesty International um gasbruna er ein af mikilvægustu leiðunum til að takast á við loftslagsvána að binda enda á notkun gasbruna sem hafa sögulega bitnað verst á jaðarsett samfélögum á svokölluðum fórnarsvæðum. Lönd sem eru háð olíuvinnslu verða að sjá til þess að gasbrunar í tengslum við olíuvinnslu verði stöðvaðir og setja í forgang að draga úr jarðefnaeldsneyti til að tryggja hröð og réttlát orkuskipti.

  • Ekvador: Öryggi stúlknanna níu í Amazon-skógi í hættu

    Leonela Moncayo er umhverfissinni frá Amazon-skóginum í Ekvador og ein af níu stúlkum sem fóru í mál við stjórnvöld þar í landi og kröfðust lögbanns á gasbruna í nágrenni við heimili þeirra á þeim grundvelli að brotið sé á mannréttindum þeirra. Héraðsdómstóll úrskurðaði stúlkunum í hag en þrátt fyrir það eru enn gasbrunar á svæðinu.

  • Styrktu baráttu stúlkna í Ekvador

    Þann 15. september ýtir Íslandsdeild Amnesty International úr vör fjáröflunarherferð  til styrktar verkefnis Amnesty International á Ameríkusvæðinu. Verkefnið styður við níu stúlkur í Amazon-skóginum í Ekvador sem berjast fyrir hreinu, heilnæmu og sjálfbæru umhverfi þar sem þær búa. Stuðningurinn felst m.a. í frekari rann­sóknum á áhrifum gasbruna á heilsu fólks og umhverfið. Einnig verður lögð áhersla á vitund­ar­vakn­ingu og herferðir, innan lands sem utan, til að þrýsta á stjórn­völd í Ekvador.