1.511 niðurstöður

Raða eftir
  • Mannréttindabrot gegn ungu baráttufólki fyrir mannréttindum í Hvíta-Rússlandi

    Ungt baráttufólk fyrir mannréttindum í Hvíta-Rússlandi sem dæmt var til „takmarkaðs frelsis“ fyrir að taka þátt í friðsamlegum mótmælum hefur sagt Amnesty International frá því hvernig stjórnvöld í landinu beittu sér gegn því og lögreglan reyndi að stjórna næstum öllu þeirra daglega lífi.

  • Áttu orð aflögu?

    Taktu þátt í alþjóðlegu bréfamaraþoni Amnesty International og skrifaðu undir kort í þágu þolenda mannréttindabrota á aðventunni. Tilbúin bréf til stjórnvalda á staðnum.

  • Jólakortapökkun laugardaginn 14. nóvember – taktu þátt

    Íslandsdeild Amnesty International verður með jólakortapökkun laugardaginn 14. nóvember, frá kl. 14-17. Félagar og aðrir eru hvattir til að kíkja við smástund, hjálpa til við pökkun, nálgast jólakort 2009 eða úrval jólakorta fyrri ára.

  • Góðar fréttir: 68 föngum sleppt í Túnis

    Amnesty International fagnar því að 68 fangar hafi verið leystir úr haldi í Túnis. Þeim hafði verið haldið í fangelsi í rúmlega ár í tengslum við fjöldamótmæli gegn atvinnuleysi og dýrtíð í Gafsa-héraði.

  • Amnesty-bíó fimmtudaginn 12. nóvember

    Næstkomandi fimmtudagskvöld, 12. nóvember, sýnir Íslandsdeild Amnesty International myndina The Yes Men í húsakynnum deildarinnar að Þingholtsstræti 27, þriðju hæð og hefst klukkan 19:00.

  • Ísrael takmarkar mjög aðgang Palestínumanna að vatni

    Amnesty International ásakar Ísraela um að neita Palestínumönnum um rétt þeirra til viðunandi vatns með því að halda algjörum yfirráðum yfir vatnsbirgðum sem ætlaðar eru bæði Ísraelum og Palestínumönnum og sýna mismunun í útdeilingu vatns.