Amnesty-bíó fimmtudaginn 12. nóvember
Næstkomandi fimmtudagskvöld, 12. nóvember, sýnir Íslandsdeild Amnesty International myndina The Yes Men í húsakynnum deildarinnar að Þingholtsstræti 27, þriðju hæð og hefst klukkan 19:00.
Næstkomandi fimmtudagskvöld, 12. nóvember, sýnir Íslandsdeild Amnesty International myndina The Yes Men í húsakynnum deildarinnar að Þingholtsstræti 27, þriðju hæð og hefst klukkan 19:00.
Amnesty International ásakar Ísraela um að neita Palestínumönnum um rétt þeirra til viðunandi vatns með því að halda algjörum yfirráðum yfir vatnsbirgðum sem ætlaðar eru bæði Ísraelum og Palestínumönnum og sýna mismunun í útdeilingu vatns.
Ísraelar meina Palestínumönnum um það vatn sem þeir þurfa.
Íslandsdeildin hefur ætíð leitast við að fá verk íslenskra listamanna til að prýða kortin. Jólakort 2009 er eftir Húbert Nóa Jóhannesson og heitir Málverk af málverki.
Íslandsdeild Amnesty International hefur sent meðfylgjandi bréf til Rögnu Árnadóttur dómsmála- og mannréttindaráðherra. Í bréfinu er ráðherra hvattur til að til að heimila ekki notkun rafbyssa eða annarra rafstuðstækja á Íslandi.
Amnesty International fagnar því að dauðadómi yfir mongólska fanganum Buuveibaatar hefur verið breytt í fangelsisdóm.
Amnesty International efnir til stórrar ráðstefnu um mannréttindi í Kaupmannahöfn þann 28. nóvember.
Einn liður í aðgerðaviku Íslandsdeildar Amnesty International sem stendur frá 12. til 17. október er sýning myndarinnar; The End of Poverty? Think again.
Fátækt er eins og fangelsi sem hinir áhrifamiklu skapa hinum áhrifalausu. Milljónir eru fangar hennar vegna óréttlætis, mismununar og ójafnræðis.
Amnesty International fagnar lausn samviskufangans Jacintu Francisco Marcial, sem var haldið saklausri í fangelsi í þrjú ár sökuð um að hafa rænt sex alríkislögreglumönnum.
Laugardaginn 10. október stendur Íslandsdeild Amnesty International fyrir táknrænni aðgerð Í Smáralind til stuðnings fólki sem sætir þvinguðum brottflutningi víða í Afríku.
Hundruð þúsunda Afríkubúa um alla álfuna missa húsnæði sitt á hverju ári þegar yfirvöld þvinga þá úr húsum sínum.