Langar þig til að taka þátt í aðgerð?
Laugardaginn 10.október næstkomandi stendur Íslandsdeild Amnesty International fyrir táknrænni aðgerð í Smáralind til stuðnings fólki sem sætir þvinguðum brottflutningi víða í Afríku. Ljósmyndir verða til sýnis, aðgerðakortum dreift, boðið upp á heimsókn í hreysi og heitt afrískt te, og undirskriftum safnað á „hús undirskriftanna“.

