Amnesty International fagnar niðurstöðu hæstaréttar Bandaríkjanna
Amnesty International fagnar niðurstöðu hæstaréttar Bandaríkjanna sem kveður á um rétt fanga sem haldið er í Guantanamó búðunum til að fá úrskurðað í málum sínum fyrir dómstólum í Bandaríkjunum. Dómurinn er sá þriðji sem hæstiréttur Bandaríkjanna kveður upp frá árinu 2004 um réttarstöðu fanga í Guantanamó. Viðbrögð Bush stjórnarinnar við fyrri dómum hafa verið nýjar lagasetningar sem hafa skert enn frekar réttindi fanga.

