1.504 niðurstöður

  • Þúsund bréf í þágu mannréttinda

    Á alþjóðlegum mannréttindadegi hinn 10. desember efndi Íslandsdeild Amnesty International til bréfamaraþons. Fjöldi félaga tók þátt í maraþoninu bæði í Reykjavík og á Höfn í Hornafirði.

  • Almennt námskeið fyrir félaga á vegum Íslandsdeildar Amnesty International

    Íslandsdeild Amnesty International vekur athygli á námskeiði sem efnt verður til laugardaginn 14. október á Fosshótel Lind við Rauðarárstíg 18, Reykjavík. Námskeiðið hefst kl. 13 og stendur til kl. 17. Á námskeiðinu verður fjallað um sögu og uppbyggingu Amnesty International, mannréttindaáherslur samtakanna um þessar mundir, og annað sem viðkemur mannréttindastarfi Amnesty International.

  • Vegna átakanna í Ísrael/Líbanon

    Þann 14. ágúst síðastliðinn gekk í gildi vopnahlé milli Ísraels og Hizbollah. Þá lágu um 1000 óbreyttir borgarar í valnum eftir loft- og stórskotaárásir Ísraelshers og aðrir 40 höfðu látist eftir sprengjuárásir Hizbollah á Norður-Ísrael.

  • Átökin í Líbanon og Ísrael

    Á vegum okkar eru nú rannsóknanefndir annars vegar í Líbanon og hins vegar í Norður-Ísrael. Á slóðinni http://amnestylebanonisrael.blogspot.com/ er hægt að fylgjast með ferðinni og fyrstu niðurstöðum.

  • Vopnaviðskiptasáttmáli ekki samþykktur á ráðstefnu Sþ í júní

    Í júnílok var haldin ráðstefna á vegum Sameinuðu þjóðanna um smávopn. Fyrir ráðstefnunni lágu drög að alþjóðlegum samningi um viðskipti með smávopn, sem Amnesty International og fleiri samtök þrýstu á um að yrði samþykktur á ráðstefnunni.

  • Ísrael / Líbanon

    Síðustu daga höfum við orðið vitni að árásum á almenna borgara í Líbanon og Ísrael. Amnesty International hefur þungar áhyggjur af því að almennir borgarar beri hitann og þungann af hinni vaxandi spennu milli Ísrael og Líbanon.