1.596 niðurstöður

Raða eftir
  • Sýningin ,,Dropar af regni” í göngum Blöndustöðvar í Húnaþingi

    Sýningin ,,Dropar af regni: Amnesty International á Íslandi 30 ára” hefur verið sett upp í göngum Blöndustöðvar í Húnaþingi. Sýningin sem er farandsýning var fyrst sett upp í Ráðhúsi Reykjavíkur, þaðan fór hún í Smáralind og síðan í Öskju, byggingu Háskóla Íslands

  • Amnesty International fordæmir sprengjuárásirnar í Lundúnum

    Amnesty International fordæmir sprengjuárásirnar í Lundúnum sem hafa kostað almenna borgara lífið og sært fjölda fólks alvarlega. Heimildir herma að sprengjur hafi sprungið á sex neðanjarðar-lestarstöðvum og einni strætisvagnastöð.

  • Aðgerðaáætlun gegn kynbundnu ofbeldi

    Á föstudaginn klukkan 8:30 gefst tækifæri til að eiga orðastað viðstjórnvöld um til hvaða aðgerða skuli gripið gegn kynbundnu ofbeldi.Fundurinn er hugsaður sem samræðuvettvangur til að koma að hugmyndum ogathugasemdum en byggt er á drögum að aðgerðaáætlun sem unnar voru í kjölfar16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi og fylgir með sem viðhengi.

  • Ársskýrsla Amnesty International 2005

    Í dag, 25. maí, er ársskýrsla Amnesty International birt. Í skýrslunni er að finna ítarlegt yfirlit um ástand mannréttinda í heiminum og úttekt á störfum samtakanna í þágu mannréttinda og fórnarlamba mannréttindabrota. Skýrslan skýrir frá ástandi mannréttinda í 149 löndum,greinir þróun mannréttinda í heiminum á síðasta ári og veitir upplýsingar um rannsóknir og aðgerðir Amnesty International í þágu mannréttinda.

  • Heimildamyndasýning á vegum Amnesty International

    Kæru félagar, Nú, í sumarbyrjun, mun Íslandsdeild Amnesty International sýna þrjár heimildarmyndir þriðjudaginn 24. maí, kl. 20. Allar heimildarmyndirnar eru tengdar baráttunni gegn ofbeldi í garð kvenna. Myndirnar, sem eru á dvd-formi, verða sýndar á tjaldi í sýningarsal á þriðju hæð Alþjóðahússins að Hverfisgötu 18, 101 Reykjavík (skáhallt á móti Þjóðleikhúsinu). Sýndar verða þessar heimildarmyndir: Ciudad Juarez and Chihuahua: Search for Justice – heimildarmynd um mannshvörf og morð á ungum konum í Mexíkó, sem stjórnvöld gera fátt til að stöðva. Lives blown apart – heimildarmynd um áhrif stríðsátaka á líf kvenna. Loks verður sýnd heimildarmyndin Sudan: human rights under fire um mannréttindabrot í borgarastyrjöldinni. Myndirnar taka alls um 1 klst í sýningu og eru með ensku tali. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir. Við viljum hvetja sem flesta Amnesty félaga, og aðra sem hafa áhuga á mannréttindum, til að mæta. Aðgerðahópur 1 hjá Íslandsdeildinni hefur veg og vanda að undirbúningi sýningarinnar. Mætum öll!

  • Uppákoma gegn ofbeldi

    Birting – samtök ungs fólks, ásamt öðrum, standa fyrir uppákomu gegn ofbeldi á Ingólfstorgi næstkomandi föstudag kl. 17. Ofbeldi í hvaða mynd verður þar mótmælt.

  • Dropar af regni

    Nýverið hófst í Ráðhúsi Reykjavíkur sýningin

  • Heimildamyndasýning á vegum Amnesty International

    Kæru félagar, Í aðdraganda alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar mun Íslandsdeild Amnesty Internationa sýna þrjár heimildarmyndir í kvöld, þriðjudaginn 5. apríl, kl. 20. Allar heimildarmyndirnar eru tengdar baráttunni gegn ofbeldi í garð kvenna. Myndirnar, sem eru á dvd-formi, verða sýndar á tjaldi í sýningarsal á þriðju hæð Alþjóðahússins að Hverfisgötu 18, 101 Reykjavík (skáhallt á móti Þjóðleikhúsinu).