AÐVENTUSAMKOMA
Aðventusamkoma Amnesty International, í samvinnu við söfnuði á Héraði, verður haldin í Egilsstaðakirkju föstudaginn 10.des., kl.20,30
Aðventusamkoma Amnesty International, í samvinnu við söfnuði á Héraði, verður haldin í Egilsstaðakirkju föstudaginn 10.des., kl.20,30
Á hverju ári minnir alþjóðadagur mannréttinda okkur á að að mannréttindabrot tíðkast enn og mikið starf er óunnið svo að mannréttinda allra séu virt.
Á alþjóðlega mannréttindadaginn 10. desember heldur Íslandsdeild Amnesty International tónleika kl. 20.30 í Neskirkju við Hagatorg. Eins og áður hefur deildin fengið einvala lið listamanna til liðs við sig.
Tveir aðgerðahópar innan Amnesty International, hópur 4 og MH-hópur, áttu veg og vanda af sýningunni
Stjórn Íslandsdeildar Amnesty International skorar á Alþingi að tryggja áfram rekstrargrundvöll Mannréttindaskrifstofu Íslands.
Næstu 16 daga mun fjöldi aðila sem láta sig málefnið varða standa fyrir margvíslegum viðburðum í því augnamiði að vekja athygli almennings á orsökum og afleiðingum kynbundins ofbeldis.
Næsta laugardag, 27. nóvember, klukkan 15.00 mun Amnesty International á Íslandi standa fyrir óvenjulegri tískusýningu, svonefndri
Í tengslum við yfirstandandi herferð Amnesty International gegn ofbeldi í garð kvenna mun Íslandsdeildin taka þátt í táknrænni athöfn, sem fram fer á morgun, fimmtudaginn 28. október. Athöfnin verður haldin á Arnarhóli og hefst kl. 17. Við hvetjum alla félaga til að mæta og sýna í verki vilja til að enda ofbeldi gegn konum. Sjá nánar meðfylgjandi fréttatilkynningu.
Kvennaathvarfið, Íslandsdeild Amnesty International og Mannréttindaskrifstofa gengust fyrir velheppnuðu málþingi í Norræna húsinu í gær
Íslandsdeild Amnesty International mun kynna aðgerðastarf hópa fyrir félögum í lok október. Kynningarfundirnir verða tveir;
Amnesty International, Kvennaathvarfið og Mannréttindaskrifstofa Íslands boða til málþings í Norræna húsinu Fimmtudaginn 14. október kl. 17.00 Glæpur og refsileysi Ofbeldi í skjóli heimilisins Íslandsdeild Amnesty International, Mannréttindaskrifstofa Íslands og Kvennaathvarfið efna til málþings í Norræna húsinu fimmtudaginn14. október. Málþingið hefst kl. 17 og stendur í rúma tvo klukkutíma. Á málþinginu verður skoðað hvernig málum er varða heimilisofbeldi er háttað hér á landi. Velt verður upp spurningunni hvort litið er á heimilisofbeldi sömu augum og annað ofbeldi og kannað hvort réttarkerfið hafi sömu úrræði gegn heimilisofbeldi og öðru ofbeldi. Einnig verður fjallað um reynslu og aðkomu lögreglunnar að slíkum brotum. Frummælendur eru Brynhildur Flóvenz lögfræðingur og Gunnleifur Kjartansson, lögreglufulltrúi. Auk þeirra munu Drífa Snædal, fræðslu- og framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins fjalla um ofbeldið af sjónarhóli þess, og Jóhanna K. Eyjólfsdóttir, framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International greina frá alþjóðlegu átaki AI gegn ofbeldi á konum. Guðrún D. Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands, stýrir umræðum. Ofbeldi á heimilum er útbreitt, víðtækt og falið vandamál. Ofbeldi gegn konum hefur verið lýst sem mesta mannréttindahneyksli okkar tíma og ljóst er að fáir ofbeldismenn svara til saka vegna slíkra brota. Tilgangur málþingsins er að kanna hvernig þessum málum er háttað hér á landi og hvaða leiðir eru færar til að koma í veg fyrir refsileysi slíkra brota. Málþingið er opið öllum og aðgangur ókeypis.
Fréttatilkynning Alþýðusamband Íslands, Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, Deiglan.com, Íslandsdeild Amnesty International, Múrinn, Sellan, Skoðun, Tíkin, Ung frjálslynd, Ung vinstri græn og Ungir jafnaðarmenn. Með bréfi 27. maí sl., skoruðu ellefu félög og netmiðlar á ríkisstjórn Íslands að koma mótmælum á framfæri með formlegum hætti við ríkisstjórn Bandaríkjanna vegna mannréttindabrotanna í herstöð Bandaríkjamanna við Guantanamo flóa á Kúbu. Í kjölfarið var hafin undirskriftasöfnun á netinu. Í bréfi utanríkisráðuneytisins 8. júní sl. kom fram að formlegum mótmælum hafi verið komið á framfæri við fulltrúa bandarískra yfirvalda. Athygli skal vakin á að stjórnvöld gerðu mótmæli sín opinber í fréttatilkynningu 11. júní sl. sem greindi frá svari utanríkisráðuneytisins til aðstandenda áskorunarinnar. Aðstandendur áskorunarinnar telja mikilvægt að ríkisstjórn Íslands láti sig varða mannréttindi fanganna í Guantanamo herstöðinni sem margir hafa setið þar í haldi án dóms og laga í vel á þriðja ár og sætt ómannúðlegri meðferð og hugsanlega pyntingum. Jafnframt er því fagnað að mótmælum íslenskra yfirvalda vegna brota á mannréttindum Guantanamo fanganna hafi verið komið formlega á framfæri við fulltrúa Bandaríkjanna. Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur nú í vel á þriðja ár haldið mörg hundruð einstaklingum föngnum án dóms og laga. Það er því ljóst að það er nauðsynlegt að almenningur og ríki heims tali skýrt þegar mótmælt er þessum alvarlegu mannréttindabrotum Bandaríkjamanna. Íslensk yfirvöld eru hvött til að beita áhrifum sínum á alþjóðavettvangi á eins afgerandi hátt og kostur er og hvetja önnur ríki til að mótmæla brotum á mannréttindum fanganna í Guantanamo. Alþýðusamband Íslands, Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, Deiglan.com, Íslandsdeild Amnesty International, Múrinn, Sellan, Skoðun, Tíkin, Ung frjálslynd, Ung vinstri græn og Ungir jafnaðarmenn.