1.500 niðurstöður

  • Vel heppnað upphaf herferðarinnar Bréf til bjargar lífi

    Gagnvirkri ljósainnsetningu Íslandsdeilar Amnesty International Lýstu upp myrkrið var ýtt úr vör þann 1. desember við Hallgrímskirkju en henni er ætlað að vekja athygli á árlegri herferð samtakanna Bréf til bjargar lífi.

  • Árangur úr Bréf til bjargar lífi

    Bréf til bjargar lífi er stærsti mannréttindaviðburður heims og fer nú fram samtímis í fjölmörgum löndum víða um heim. Árangurinn hefur ekki látið á sér standa síðustu ár og hefur skipt sköpum í lífi einstaklinga.

  • Rannsókn Amnesty leiðir í ljós skelfileg áhrif netofbeldis gegn konum

    Ný rannsókn Amnesty International leiðir í ljós skelfileg áhrif sem netofbeldi (netníð og netáreitni) á samfélagsmiðlum hefur á konur. Í skýrslunni greina konur víða um heim frá streitu, kvíða og kvíðaköstum í kjölfar þessarar skaðlegu reynslu á netinu.

  • Jólakort 2017

    Kortin eru 10 saman í pakka ásamt umslögum og kosta 1.800 kr. Hægt er að fá þau með áletraðri jólakveðju eða án.  Jólakortin eru fáanleg á skrifstofu Amnesty International í Þingholtsstræti 27, 101 Reykjavík á opnunartíma skrifstofunnar frá 9-17. Auk þess eru þau komin í verslanir Pennans Eymundsson og Bóksölu stúdenta. 

  • Tyrkneskur dómstóll leysir mannréttindafrömuði úr haldi

    Í framhaldi af ákvörðun dómstóls í Tyrklandi um að leysa átta mannréttindafrömuði úr haldi gegn tryggingu lét Salil Shetty framkvæmdastjóri Amnesty International eftirfarandi orð falla:  „Loks í dag getum við fagnað því að vinir okkar og samstarfsfólk geti snúið aftur heim til ástvina sinna og sofið í eigin rúmi í fyrsta sinn í nærri fjóra mánuði…“

  • Ísrael:Palestínskur sirkuslistamaður leystur úr haldi

    Palestínskur sirkulistamaður og kennari, Mohamed Faisal Abu Sakha, var sleppt lausum úr Ketziot-fangelsinu í Ísrael þann 30. ágúst. Hann sat nærri tvö ár í varðhaldi án dómsúrskurðar og var aldrei ákærður eða réttað yfir honum. Hann er kominn heim til fjölskyldu sinnar í Jenin á Vesturbakkanum. 

  • 40 ár frá sögulegri yfirlýsingu gegn dauðarefsingunni

    Ríkjum sem verja dauðarefsinguna og beita henni fækkar sífellt. Þau ættu að fylgja eftir þróuninni á heimsvísu segir Amnesty International á fimmtánda alþjóðlega baráttudeginum gegn dauðarefsingunni.