Evrópusambandið: Starfsreglur um björgunaraðgerðir á sjó ógna lífi flóttafólks
Skjöl, sem var lekið til Amnesty International, fela í sér tillögur að starfsreglum sem binda munu hendur frjálsra félagasamtaka.
Skjöl, sem var lekið til Amnesty International, fela í sér tillögur að starfsreglum sem binda munu hendur frjálsra félagasamtaka.
Mannréttindafrömuðirnir níu sem handteknir voru í Istanbúl fyrir rúmri viku og sitja í varðhaldi hafa allir lagt mikið á vogaskálirnar í mannréttindabaráttunni.
Amnesty International fagnar nýjum lögum í Mongólíu sem eru stór áfangi í átt að vernd mannréttinda í landinu. Lögin, sem afnema dauðarefsinguna fyrir alla glæpi, voru innleidd 1. júlí 2016 eftir að mongólíska þingið samþykkti þau 3. desember 2015.
Fjölgun dauðsfalla fyrir miðju Miðjarðarhafsins og skelfilegar misþyrmingar sem þúsundir flóttamanna sæta í líbískum varðhaldsstöðvum tengjast glögglega misheppnaðri stefnu Evrópusambandsins.
Vegna skorts á öruggum og lagalegum leiðum til Evrópu á síðustu árum hefur flótta- og farandfólk stofnað lífi sínu í hættu.
Framkvæmdastjóri Tyrklandsdeildar Amnesty International, Idil Eser, var ásamt sjö öðrum mannréttindafrömuðum og tveimur þjálfurum handtekin í gær, miðvikudag, þegar þau tóku þátt í námskeiði um stafrænt öryggi og upplýsingastjórnun í Büyükada í Istanbúl.
Ný löggjöf í Mexíkó gegn pyndingum er kærkomið framfaraskref í baráttunni fyrir mannréttindum í landinu. Yfirvöld verða þó að tryggja að þeir sem ábyrgir eru fyrir pyndingum verði sóttir til saka.
Ákvörðun tyrkneska ákæruvaldsins að kæra Taner Kiliç, formann Amnesty í Tyrklandi, fyrir aðild að hryðjuverkasamtökum er lítilsvirðing við réttlætið og sýnir harkaleg áhrif herferðar tyrkneskra yfirvalda í kjölfar misheppnaðrar valdaránstilraunar í júlí í fyrra.
Alvarlegir brestir í réttarkerfi Malaví hafa síðustu sex mánuði ýtt undir nýja bylgju morða á og árása gegn fólki með albínisma.
Shahrul Izani Suparman, sem dæmdur var til dauða árið 2009 fyrir fíkniefnaviðskipti, hefur formlega fengið mildaðan dóm. Eftir fjögur á hann möguleika að verða leystur fyrr úr haldi fyrir góða hegðun. Shahrul fannst með kannabis í fórum sínum árið 2003 þegar hann var 19 ára.
Formaður tyrknesku deildar Amnesty International, Taner Kiliç, hefur verið handtekinn í fjöldahandtökum. Hann var í hópi 22 lögfræðinga sem handteknir voru í borginni Izmir, grunaður um að hafa tengsl við hreyfingu Fethullah Gülen. Amnesty International krefst þess að Taner Kiliç og hinir lögfræðingarnir verði leystir tafarlaust úr haldi og allar ákærur gegn þeim látnar falla niður.
Dómarar við stjórnlagadómstól í Taívan úrskurðuðu í síðustu viku að núverandi lög um hjónaband brjóti gegn stjórnarskránni vegna mismununar gegn samkynhneigðum pörum.