Metþátttaka Íslendinga í Bréf til bjargar lífi árið 2017
Aldrei hafa fleiri Íslendingar lagt mannréttindabaráttunni lið í hinni árlegu herferð Amnesty International Bréf til bjargar lífi eins og árið 2017.
Aldrei hafa fleiri Íslendingar lagt mannréttindabaráttunni lið í hinni árlegu herferð Amnesty International Bréf til bjargar lífi eins og árið 2017.
Nú, í lok árs, óskum við þér gleðilegrar hátíðar og þökkum þér kærlega fyrir árið sem er að líða.
Hið árlega Bréf til bjargar lífi (Bréfamaraþon) á vegum Íslandsdeildar Amnesty International fer fram á skrifstofu deildarinnar að Þingholtsstræti 27, laugardaginn 9. desember næstkomandi frá kl. 13 til 17.
Gagnvirkri ljósainnsetningu Íslandsdeilar Amnesty International Lýstu upp myrkrið var ýtt úr vör þann 1. desember við Hallgrímskirkju en henni er ætlað að vekja athygli á árlegri herferð samtakanna Bréf til bjargar lífi.
Bréf til bjargar lífi er stærsti mannréttindaviðburður heims og fer nú fram samtímis í fjölmörgum löndum víða um heim. Árangurinn hefur ekki látið á sér standa síðustu ár og hefur skipt sköpum í lífi einstaklinga.
Það er heilmikið að gerast hjá okkur! Næsta föstudag, 1. desember, munum við hleypa herferðinni Bréf til bjargar lífi úr vör með einstakri, gagnvirkri ljósainnsetningu við Hallgrímskirkju í Reykjavík.
Ný rannsókn Amnesty International leiðir í ljós skelfileg áhrif sem netofbeldi (netníð og netáreitni) á samfélagsmiðlum hefur á konur. Í skýrslunni greina konur víða um heim frá streitu, kvíða og kvíðaköstum í kjölfar þessarar skaðlegu reynslu á netinu.
Kortin eru 10 saman í pakka ásamt umslögum og kosta 1.800 kr. Hægt er að fá þau með áletraðri jólakveðju eða án. Jólakortin eru fáanleg á skrifstofu Amnesty International í Þingholtsstræti 27, 101 Reykjavík á opnunartíma skrifstofunnar frá 9-17. Auk þess eru þau komin í verslanir Pennans Eymundsson og Bóksölu stúdenta.
Að minnsta kosti 530.000 Rohingjar, karlmenn, konur og börn hafa flúið norðurhluta Rahkine-fylkis á síðustu vikum vegna kerfisbundinna og útbreiddra íkveikja, nauðgana og morða af hálfu öryggissveita Mjanmar.
Í framhaldi af ákvörðun dómstóls í Tyrklandi um að leysa átta mannréttindafrömuði úr haldi gegn tryggingu lét Salil Shetty framkvæmdastjóri Amnesty International eftirfarandi orð falla: „Loks í dag getum við fagnað því að vinir okkar og samstarfsfólk geti snúið aftur heim til ástvina sinna og sofið í eigin rúmi í fyrsta sinn í nærri fjóra mánuði…“
Nú styttist óðum í hið árlega átak Bréf til bjargar lífi eða Bréfamaraþonið eins og það hefur áður verið kallað.
Í nýrri skýrslu Amnesty International kemur fram að ríkisstjórn Póllands leggur allt kapp á að berjast gegn friðsömum mótmælendum til að koma í veg fyrir frekari mótmæli í landinu.