Aðalfundur Íslandsdeildar Amnesty International 25. mars 2017
Aðalfundur Íslandsdeildar Amnesty International verður haldinn laugardaginn 25. mars 2017 kl. 14.00 í húsnæði deildarinnar að Þingholtsstræti 27, 101 Rvk., 3 hæð.
Aðalfundur Íslandsdeildar Amnesty International verður haldinn laugardaginn 25. mars 2017 kl. 14.00 í húsnæði deildarinnar að Þingholtsstræti 27, 101 Rvk., 3 hæð.
Í aðdraganda leiðtogafundar á Möltu, sem fram fór þann 3. febrúar síðastliðinn, varaði Amnesty International ráðamenn í Evrópu við hættunni á grófum mannréttindabrotum sem fylgja lokun á sjóleið flóttafólks og farandfólks frá Líbýu til álfunnar.
Blaðamaðurinn Muhammad Bekzhanov var leystur úr haldi þann 22. febrúar eftir að hafa setið 17 ár í fangelsi. Samstarfsaðilar Amnesty International í Úsbekistan létu vita af þessu.
Stjórnmálamenn beita nú æ oftar eitraðri hugmyndafræði um „við gegn þeim“. Þessi orðræða stjórnmálamanna í heiminum hefur aukið bilið milli landa og gert heiminn hættulegri segir í ársskýrslu Amnesty International, en samtökin gáfu í dag út árlegt yfirlit sitt yfir stöðu mannréttinda í heiminum.
Amnesty International hefur ýtt úr vör netnámskeiðinu Mannréttindi: Réttindi flóttafólks. Námskeiðið gerir fólki kleift að fræðast á sínum eigin hraða um réttindi fólks á flótta og að efla færni sína í baráttu fyrir réttindum flóttafólks.
Flóttamannasamningur Evrópusambandsins við Tyrkland hefur leitt til þess að þúsundir flóttamanna og farandfólks hírast við hörmuleg og hættuleg búsetuskilyrði á Grikklandi.
Amnesty International voru að berast þær fréttir að hætt hefur verið við aftöku Hamid Ahmadi. Írönsk yfirvöld hafa tilkynnt fjölskyldu hans að hætt hafi verið við öll áform um að taka hann af lífi.
Ný og svört skýrsla Amnesty International afhjúpar skipulagðar aftökur sýrlenskra stjórnvalda án dóms og laga í Saydnaya-fangelsi.
Árlega heldur Íslandsdeild Amnesty International Bréfamaraþon þar sem samtökin hvetja einstaklinga til að taka höndum saman og styðja við bakið á þolendum mannréttindabrota með pennann að vopni. Fyrir rúmu ári setti Íslandsdeildin á laggirnar vefsíðuna „Bréf til bjargar lífi“ þar sem einstaklingar og menntastofnanir voru hvattar til að leggja hönd á plóg. Sem fyrr efndi Íslandsdeild Amnesty International einnig til samkeppni meðal framhaldsskóla landsins um mestan fjölda undirskrifta á Bréfamaraþoni samtakanna.
Nú verður engum vettlingatökum beitt. Bandaríkin hafa tekið silkihanskana af.
Þann 25. janúar gaf Donald Trump, nýkjörinn forseti Bandaríkjanna, út nokkrar tilskipanir sem tengjast málefnum innflytjenda.
Moses Akatugba var handtekinn af nígeríska hernum þegar hann var aðeins 16 ára gamall en við handtökuna var hann skotinn í höndina og barinn. Hann var bundinn á fótum og látinn hanga á hvolfi í marga klukkutíma í yfirheyrsluherbergi. Loks var töng notuð til að draga neglur af fingrum hans og tám í þeim tilgangi að þvinga hann til að játa á sig glæp. Eftir átta ár í fangelsi, án dóms og laga, hlaut hann dauðadóm.