Fréttir

7. febrúar 2017

Sýrland: Nýrann­sókn AI afhjúpar fjölda­heng­ingar og pynd­ingar í hinu illræmda Saydnaya-fang­elsi

Ný og svört skýrsla Amnesty Internati­onal afhjúpar skipu­lagðar aftökur sýrlenskra stjórn­valda  án dóms og laga í Saydnaya-fang­elsi. Í flestum tilvikum hafa fangar verið hengdir.
Á árunum 2011 til 2015 voru hópar fanga, oft allt að fimmtíu talsins, teknir viku­lega eða tvisvar í viku, út úr fanga­klefum og hengdir. Á fimm árum er áætlað að allt að 13.000 manns, flestir þeirra óbreyttir borg­arar andsnúnir stjórn­völdum, hafi verið hengdir á laun í Saydnaya-fang­elsi.
Skýrsla Amnesty Internati­onal, Slát­urhús: Fjölda­heng­ingar og útrým­ingar í Saydnaya-fang­elsi, Sýrlandi (Human slaug­hter­house: Mass hang­ings and exterm­ination at Saydnaya prison, Syria) sýnir einnig að stjórn­völd í landinu beita ómann­úð­legri meðferð kerf­is­bundið og meðvitað gegn fólki í varð­haldsvist í  Saydnaya-fang­elsi: Fólk er endur­tekið pyndað og mat haldið frá því, einnig lyfjum og lækn­is­að­stoð. Í skýrsl­unni er því lýst hvernig þessi útrým­ing­ar­stefna hefur gert að verkum að fjöldi fólks í varð­haldsvist hefur látið lífið.
Saydnaya-fang­elsi: Slát­urhús Þetta fram­ferði, sem heim­ilað var af helstu ráða­mönnum í Sýrlandi, telst til stríðs­glæpa og glæpa gegn mann­kyni. Markmið þess var að brjóta á bak aftur alla andstöðu sýrlenskra borgara.
Amnesty Internati­onal krefst þess að sýrlensk stjórn­völd hætti þegar í stað aftökum án dóms og laga, sem og pynd­ingum og ómann­úð­legri meðferð í Saydnaya-fang­elsi og öllum öðrum fang­elsum stjórn­valda í Sýrlandi. Rúss­land og Íran, nánustu banda­menn stjórn­valda, verða að þrýsta á þarlend stjórn­völd að hætta þessari grimmi­legu og ómann­úð­legu stefnu.
Á döfinni eru frið­ar­við­ræður stríð­andi aðila í Sýrlandi í Genf. Taka verður tillit til þessara rann­sókna Amnesty Internati­onal í þeim viðræðum og krefjast verður að stjórn­völd bindi enda á þennan hrylling sem viðgengst í sýrlenskum fang­elsum. Sameinuðu þjóð­irnar verða tafar­laust að ráðast í óháða rann­sókn á glæp­unum sem framdir hafa verið í Saydnaya-fang­elsi og krefjast aðgangs fyrir óháða rann­sókn­ar­aðila að öllum varð­halds­stöðvum í landinu.
Nánari upplýs­ingar á ensku má lesa hér:
Skýrsluna má lesa hér:

Lestu einnig