Fylgst með liði flóttamanna keppa á Ólympíuleikunum í einum stærstu flóttamannabúðum heims
Flóttafólk í flóttamannabúðunum í Kakuma í Kenía hvetur með stolti lið flóttafólks sem keppir á Ólympíuleikunum í Ríó de Janeiro.
Flóttafólk í flóttamannabúðunum í Kakuma í Kenía hvetur með stolti lið flóttafólks sem keppir á Ólympíuleikunum í Ríó de Janeiro.
Lausn mexíkóska umhverfissinnans og samviskufangans sem var óréttilega settur í fangelsi fyrir níu mánuðum, í að því virðist þeim tilgangi að refsa honum fyrir friðsamlegar aðgerðir gegn ólöglegu skógarhöggi, er sigur fyrir réttlætið og mannréttindi.
Í júlí síðastliðnum var mál Narges Mohammadi tekið upp í SMS-aðgerðaneti Amnesty International. Hún var í hungurverkfalli til að mótmæla því hvernig dómsyfirvöld komu sífellt í veg fyrir að hún gæti haft símasamband við níu ára gamla tvíbura sína
Ungliðar Íslandsdeildarinnar munu taka þátt í Gleðigöngunni fyrir alla þá sem hafa ekki frelsi til að elska eða vera þeir sjálfir án þess að eiga á hættu að gjalda þess dýrum dómi. En eins og staðan er í dag liggja enn viðurlög við því að elska manneskju af sama kyni í 73 ríkjum í heiminum.
Rannsókn Amnesty International á fjarlægri Kyrrahafseyju leiddi í ljós skipulögð mannréttindabrot sem mikil leynd ríkir yfir.
Amnesty International hefur lengi þrýst á stjórnvöld heims um að gera meira þegar kemur að samábyrgð svo að tryggja megi réttindi flóttamanna og mun nú í september hrinda af stað byltingarkenndri alþjóðlegri herferð um flóttamannavandann
Sumarið er mikilvægur tími hjá félagasamtökum eins og Amnesty International og halda samtökin áfram baráttunni fyrir auknum mannréttindum þrátt fyrir sumarfrí landsmanna. Ungliðar í ungliðahreyfingunni hafa staðið að vel heppnuðum aðgerðum.
Ungliðahreyfing Íslandsdeildar Amnesty International tekur þátt í Druslugöngunni næstkomandi laugardag, þann 23. júlí, líkt og í fyrra. Í ár vekur hún athygli á skelfilegum veruleika mexíkóskra kvenna sem lenda í klóm opinberra öryggissveita sem beita þær kerfisbundnu kynferðisofbeldi til þess að knýja fram játningar við þeim ákærum sem þeir saka þær um.
Mannréttindi eiga á brattann að sækja í Tyrklandi eftir blóðuga valdaránstilraun. Yfirlýsingar forsetans og embættismanna stjórnvalda um að hugsanlega verði dauðarefsingin tekin upp aftur til þess að refsa þeim sem verða fundnir sekir um valdaránstilraunina er mikið áhyggjuefni, þar sem að slíkt myndi brjóta gegn mannréttindasáttmálum sem að Tyrkland á aðild að sem og þeirri vernd sem tryggð er í tyrknesku stjórnarskránni.
Ný tilskipun frá fylkisstjóra Ríó de Janeiro sem veitir heimild til niðurskurðar á útgjöldum í aðdraganda Ólympíuleikanna 2016 má ekki verða notuð sem afsökun til að skera niður í grunnþjónustu og þjálfun öryggissveita sem sendar verða í fátækrahverfin, segir Amnesty International.
Samkvæmt almannaöryggisstofnunni Instituto de Segurança Pública (ISP) hafa 40 manns, í borginni einni, verið felldir af lögregluþjónum við skyldustörf í maímánuði: sem er aukning um 135% miðað við sama tímabil árið 2015.
Senn líður að Ólympíuleikunum og kastljós heimsins mun beinast að glitri og glamúr á meðan að ógnvænlegur fjöldi ungra blökkumanna í fátækrahverfunum týnir lífi sínu að ósekju, aðeins í nokkurra kílómetra fjarlægð frá leikunum. Allt vegna þess að heimurinn leit undan.