1.516 niðurstöður

Raða eftir
  • TILNEFNING TIL Íslensku VEFVERÐLAUNANNA

    Við erum yfir okkur ánægð að vefsíða Bréfamaraþonsins er tilnefnd til Íslensku vefverðlaunanna. Vefsíðunni var einstaklega vel tekið en alls söfnuðust 37.030 undirskriftir í gegnum hana frá einstaklingum, fyrirtækjum, skólum og félagsmiðstöðvum. 

  • Glæsilegur árangur á Bréfamaraþoni 2015

    Bréfamaraþonið fór fram á 19 stöðum um land allt á síðasta ári og átti fjöldi einstaklinga veg og vanda að framkvæmd þess í sínu sveitafélagi.

  • Fögnum fullgildinu íslenskra stjórnvalda á OPCAT

    Íslandsdeild Amnesty International fagnar nýtilkominni samþykkt tillögu til þingsályktunar um fullgildingu valfrjálsrar bókunar við samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu (OPCAT).

  • Grunnskólinn í Hveragerði stendur með mannréttindum

    Á dögunum stóð Grunnskólinn í Hveragerði fyrir góðgerðadegi þar sem öllu sveitafélaginu var boðið í heimsókn. Nemendur skólans lögðu hefðbundin skólastörf til hliðar dagana á undan og unnu að margvíslegum verkefnum og afrakstur þeirrar vinnu gátu gestir og gangandi virt fyrir sér og notið á góðgerðardeginum sjálfum.

  • Bréfamaraþonið á morgun, laugardaginn 12. desember!

    Bréfamaraþon Íslandsdeildar Amnesty International fer fram á fjórum stöðum á landinu á morgun, laugardaginn 12. desember: Á Akureyri í Pennanum Eymundsson, frá kl. 13 til 17. Í Borgarnesi í Hugheimum, frá kl. 13 til 16. Á Egilsstöðum, Jólakötturinn Barra, frá kl. 12 til 16. Í Reykjavík á skrifstofu Íslandsdeildar Amnesty International að Þingholtsstræti 27, þriðju hæð, frá kl. 13 til 18. Alls staðar verður hægt að skrifa undir aðgerðakort til stjórnvalda sem brjóta mannréttindi og skrifa stuðningskveðjur til þolenda brotanna. Hérna má sjá myndband í tilefni Bréfamaraþonsins. Sjáumst á morgun!

  • Framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty afhenti undirskriftir til innanríkisráðuneytisins vegna verndar fólks á flótta

    Í tilefni af alþjóðlegum mannréttindadegi Sameinuðu þjóðanna 10. desemember afhenti Íslandsdeild Amnesty International innanríkisráðuneytinu, á, 2.026 undirskriftir Íslendinga sem taka undir áskorun deildarinnar um að íslensk stjórnvöld bregðist ekki þeirri skyldu sinni að taka á móti og vernda fólk á flótta samkvæmt 14. grein Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna sem segir: „Allir eiga rétt til að leita og njóta griðlands erlendis gegn ofsóknum“.