1.516 niðurstöður

Raða eftir
  • Dauðarefsingin: Ríki halda áfram að taka fólk af lífi með þroskahömlun og geðfötlun

    Í dag er alþjóðlegur baráttudagur gegn dauðarefsingu og af því tilefni vekur Amnesty International athygli á uppteknum hætti ýmissa ríkja að dæma til dauða og taka af lífi fólk með þroskahömlun og/eða  geðfötlun, í trássi við alþjóðlegar reglur. Amnesty International hefur skráð tilfelli þar sem fólk með þroskahömlun og geðfötlun hefur verið dæmt til dauða eða tekið af lífi í löndum eins og Japan, Pakistan og Bandaríkjunum.

  • El Salvador: Blátt bann við fóstureyðingum jafngildir pyndingum

    Amnesty International gaf nýverið út skýrslu sem ber heitið On the Brink of Death: Violence Against Women and the Abortion Ban in El Salvador. Meginniðurstaða skýrslunnar er sú að á hverju ári er brotið á mannréttindum hundraða kvenna og stúlkna í El Salvador fyrir tilstuðlan fortakslauss banns við fóstureyðingum sem bundið var í landslög árið 1998.

  • Tyrkland: Lokun landamæra við Sýrland stofnar lífi fólks í hættu

    Tyrknesk yfirvöld verða að tryggja að landamæri landsins séu opin fyrir þá sem flýja átök og mannréttindabrot í Sýrlandi og Írak. Tyrkland hóf að loka landmærum sínum við Sýrland eftir að 130.000 kúrdískir flóttamenn streymdu inn í landið fyrir stuttu á flótta frá ásókn vopnaðs hóps sem kallar sig Íslamska ríkið.

  • Pyndingar á börnum í Nígeríu

    Samkvæmt nýrri skýrslu Amnesty International sem ber heitið Welcome to hell fire: Torture and other ill-treatment in Nigeria, pynda lögregla og her í Nígeríu kerfisbundið konur, menn og börn allt niður í 12 ára gömul. 

  • ÍSLANDSDEILD AMNESTY INTERNATIONAL 40 ára

    Íslandsdeild Amnesty International fagnar 40 ára afmæli sínu mánudaginn 15. september. Í tilefni dagsins bjóða samtökin félögum sínum og velunnurum að njóta með sér afmælisdagskrár á milli klukkan 17 og 19 í Hljóðbergi í Hannesarholti.

  • Nýliðafundur ungliðahreyfingarinnar 10. september

    Miðvikudaginn 10. september mun ungliðahreyfing Íslandsdeildar Amnesty standa fyrir nýliðafundi í húsakynnum sínum að Þingholtsstræti 27. Þar munum við kynna starfsemi ungliðahreyfingarinnar og segja frá áherslum vetrarins.