Kína: stjórnvöld herða ofsóknir gegn mannréttindalögfræðingum
Kínversk stjórnvöld hafa undanfarið gripið til margvíslegra ráðstafana til að hamla starfi lögfræðinga og draga úr þeim að taka að sér mál er varða mannréttindi.
Kínversk stjórnvöld hafa undanfarið gripið til margvíslegra ráðstafana til að hamla starfi lögfræðinga og draga úr þeim að taka að sér mál er varða mannréttindi.
Amnesty International fagnar 50 ára afmæli í dag 28. maí. Í tilefni af afmælinu hafa Listahátíð í Reykjavík og Íslandsdeild Amnesty International tekið höndum saman um SMS AÐGERÐ á Listahátíðartónleikum Högna Egilssonar og karlakórsins Fóstbræðra í Hörpu, sem ber upp á afmælisdag samtakanna.
Amnesty International fagnar 50 ára afmæli í dag 28. maí. Í tilefni af afmælinu hafa skipuleggjendur tónleika í Hellinum á Hólmaslóð 2 í kvöld og Íslandsdeild Amnesty International tekið höndum saman um SMS AÐGERÐ.
Kæru félagar, Af óviðráðanlegum orsökum hefur þurft að breyta fundartíma aðalfundarins.
Laugardaginn 28. maí fagnar Amnesty International 50 ára baráttu fyrir mannréttindum. Í tilefni þess hefur Reykjavíkurborg samþykkt að endurskíra Laugaveginn og þann dag mun hann heita Mannréttindavegur.
Ársskýrsla Amnesty International 2011 segir frá mannréttindabrotum í 157 ríkjum.
Aðalfundur Íslandsdeildar Amnesty International verður haldinn fimmtudaginn 19. maí 2011 kl. 20.00 í húsnæði deildarinnar að Þingholtsstræti 27, 3 hæð.
Sýrlensk yfirvöld verða að hætta ofbeldi sínu gegn fólki sem hefur unnið sér það eitt til saka að hafa sagt skoðun sína í mótmælum á opinberum vettvangi.
Líbönsk yfirvöld verða nú þegar að hefja undirbúning að stofnun óháðrar nefndar sem hefði það verk að rannsaka til hlítar örlög þúsunda sem hurfu í borgarastríðinu í landinu.
Yfirvöld í Aserbaídsjan verða að hætta atlögum sínum að fundafrelsi í landinu. Mótmæli í landinu hafa verið leyst upp með valdi í höfuðborginni, Bakú, og tugir handteknir.
Úgandískir mannréttindahópar hafa fagnað dómsúrskurði sem meinar fjölmiðlum að birta nöfn samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og transgender-fólks, í kjölfar herferðar æsifréttablaða gegn meintu samkynhneigðu fólki.
8.mars í 100 ár. Frú Vigdís Finnbogadóttir ávarpar samkomuna í upphafi fundar.