Þúsundir einstaklinga frá Mið-Ameríku, fjölskyldur þar á meðal, neyðast til að flýja heimkynni sín og allt það sem er þeim kunnulegt og kært í leit að öryggi og betra lífi fyrir sig og börnin sín. Fólk hefur ferðast fótgangandi vikum saman á leið til Bandaríkjanna á flótta undan hótunum, ofbeldi og sárri fátækt. Þetta er ekki val heldur nauðsyn til að halda lífi og fólkið þarf á hjálp þinni að halda. Þetta eru feður, mæður og börn, manneskjur eins og þú, í leit að öryggi og vernd svo að þau geti horft til framtíðar með reisn.
Donald Trump Bandaríkjaforseti og hans ríkisstjórn vinna hörðum höndum að því að koma í veg fyrir að þessar fjölskyldur fái vernd í Bandaríkjunum. Hafa bandarísk stjórnvöld nýlega gefið það út að þau munu jafnvel refsa þeim sem reyna að óska eftir vernd í Bandaríkjunum.
Forsetinn hefur einnig sagt að hermenn á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó muni hefja skothríð gegn því flóttafólki sem taki upp á því að kasta steinum að landamærunum. Að beita slíku herafli gæti valdið mikilli örvæntingu og jafnvel dauða þeirra einstaklinga sem þarfnast verndar.
Mannréttindi eru ekki skorðuð við skilríki eða ríkisborgararétt. Mannréttindi eru allra.
Skrifaðu undir ákallið núna til stuðnings einstaklingum og fjölskyldum í leit að vernd og krefstu þess að innanríkisráðherra Bandaríkjanna virði mannréttindi.