Berst fyrir samfélag sitt

Marinel Sumook Ubaldo var 16 ára þegar hún vissi að hún yrði að finna leið til að verja sjálfa sig og samfélag sitt gegn hörmulegum áhrifum loftslagsbreytinga.

Marinel lifði af fellibylinn Yolanda sem reið yfir Filippseyjar í nóvember árið 2013 en hann er sá mannskæðasti sem náð hefur landi og heimildir eru um. Fellibylurinn jafnaði þorp á eyjunni Samar, þar sem Marinel bjó, við jörðu. Rúmlega 6000 manns létu lífið á Filippseyjum í kjölfar fellibylsins og milljónir misstu heimili sín.

Sex árum síðar lauk Marinel gráðu í félagsráðgjöf. Hún er vel þekktur aðgerðasinni meðal ungs fólks og ver frítíma sínum í baráttuna fyrir félagslegum réttindum.

Í september 2018 hélt hún til New York til að bera vitni í rannsókn um loftslagsbreytingar og hvernig jarðefnaeldsneytisiðnaður ýtir undir þær. „Ég er ekki bara einhver tölfræðileg stærð um loftslagsmál. Saga mín er aðeins ein af mörgum og ég er hér til að tala fyrir hönd jaðarsamfélaga sem eiga undir högg að sækja. Megi rödd okkar heyrast.“

Marinel, fjölskylda hennar og þúsundir annarra sem misstu heimili sín í fellibylnum, þurfa nægilegt fæði, vatn, húsnæði, rafmagn og salernisaðstöðu. Stjórnvöld á Filippseyjum hafa ekki gert nóg og margir neyðast til að búa við óhollar aðstæður þar sem nánast ómögulegt er að framfleyta sér.

Marinel helgar sig baráttunni fyrir því að stjórnvöld um heim allan horfist í augu við þá vá sem fylgir loftslagsbreytingum og takist á við afleiðingar þeirra, hvort sem þær bitna á hennar eigin samfélagi eða öðrum sambærilegum.

Krefjist stuðnings við þolendur loftslagsbreytinga.

Má bjóða þér að skrifa undir fleiri mál?
Thanks for signing this particular petition
This is just a demo. You can put whatever you want in these pop-ups.