Í haldi að geðþótta í Egyptalandi fyrir kvikmyndahlutverk
Hassan El Sayed, Egypti búsettur í Danmörku, var handtekinn að geðþótta 20. desember 2025 á flugvellinum í Kaíró við komu sína til Egyptalands. Hann var að heimsækja landið með 15 ára dóttur sinni. Fulltrúar þjóðaröryggissveitar yfirheyrðu hann um hlutverk hans í egypsku kvikmyndinni Eagles of the Republic sem sýnd var á Cannes kvikmyndahátíðinni í maí 2025 en hann kemur þar fram í hlutverki egypsks prests í tuttugu sekúndur. Myndin var aldrei sýnd í Egyptalandi vegna gagnrýni hennar á egypsk stjórnmál.
Ákærður fyrir að ganga til liðs við hryðjuverkahóp
Fyrstu fimm dagana eftir handtöku sætti Hassan þvinguðu mannshvarfi þar sem fjölskyldan hans fékk ekki að vita hvar hann var eða hvað hafði orðið um hann. Hann var á þessum tíma færður til saksóknara sem fyrirskipaði gæsluvarðhald yfir honum meðan á rannsókn stæði, sem var síðar framlengt. Hann fékk ekki að hafa lögfræðing sér til handar. Hann er ákærður fyrir „að ganga til liðs við hryðjuverkahóp með vitneskju um tilgang hópsins“ sem getur falið í sér allt að 15 ára fangelsi.
Áhugaleikari
Hassan El Sayed er 60 ára og hefur verið búsettur í Danmörku í 40 ár. Hann á konu og börn sem eru með danskan ríkisborgararétt. Hann naut þess að leika í litlum hlutverkum í kvikmyndum sem áhugamál. Egypska kvikmyndin sem hann lék í er pólitískur tryllir en einnig háðsádeila á stjórnmál í Egyptalandi. Samkvæmt fjölskyldu hans hefur Hassan ekki tekið þátt í neinu pólitísku aðgerðastarfi og hafði aðeins upplýsingar um hlutverk sitt í myndinni en ekki söguþráðinn að öðru leyti.
Víðtæk þöggun
Egypsk stjórnvöld hafa lengi herjað á gagnrýnendur stjórnvalda eins og fjölmiðlafólk, lögfræðinga, aðgerðasinna og stjórnarandstæðinga. Þau sem eru í haldi af pólitískum ástæðum sæta oft löngu geðþóttavarðhaldi ásamt pyndingum og annarri illri meðferð.

