Loka þarf Alligator Alcatraz í Bandaríkjunum
Alligator Alcatraz er varðhaldsmiðstöð í Bandaríkjunum sem þarf að loka áður en hún verður að fordæmi fyrir fleiri mannréttindabrot. Þessi nýja varðhaldsmiðstöð, sem er formlega kölluð varðhaldsmiðstöð Suður-Flórída og er ætluð innflytjendum, hefur verið umdeild frá opnun hennar í júlí 2025.
Á afskekktum stað
Varðhaldsmiðstöðin hefur fengið viðurnefnið Alligator Alcatraz (Alcatraz krókódíla) þar sem hún er staðsett á afskekktu fenjasvæði. Varðhaldsmiðstöðin varð fljótt alræmd fyrir ómannúðlegar aðstæður en hefur einnig verið gagnrýnd fyrir að skaða viðkvæmt vistkerfi Everglades-votlendisins og vera byggð á landi frumbyggja.
Óbærilegar aðstæður
Í varðhaldsmiðstöðinni eru mikil þrengsli og fólki er troðið inn í stór búr með kojum þar sem varla er pláss til að hreyfa sig. Maturinn er skemmdur og morandi í möðkum. Moskítóflugur eru úti um allt og sturtur eru fáar í miklum hita og raka sem gera aðstæður óbærilegar. Að auki virðist vera erfitt fyrir fólkið í haldi að ræða við lögfræðing eða fjölskyldu sína í trúnaði.
Byggt án viðunandi eftirlits
Byggingu varðhaldsmiðstöðvarinnar var flýtt án viðunandi eftirlits. Búast má við fjölgun slíkra varðhaldsmiðstöðva ef við bregðumst ekki við. Þetta er grimmilegt, óöruggt og ónauðsynlegt. Enginn ætti að þola aðstæður sem þessar. Varðhaldsmiðstöðvar fyrir innflytjendur mega ekki verða staðir þar sem mannréttindabrot eiga sér stað.

