Mannréttindalögfræðingur í haldi

Í augum hins sex ára gamla Guangwei er pabbi hans hetja. Í nærri því fjögur ár hefur hann ekki séð pabba sinn því hann er í haldi kínverskra yfirvalda fyrir að standa vörð um mannréttindi.

Wang Quanzhang er kínverskur mannréttindalögfræðingur sem hefur hætt lífi sínu til  að verja mannréttindi. Þann 28. janúar 2019 hlaut hann fjögurra og hálfs árs dóm fyrir að „grafa undan valdi ríkisins“. Lengi vel fengust engar upplýsingar um hvar Wang Quanzhang var haldið en nú hefur komið í ljós að hann var nýlega fluttur í Linyi-fangelsið í Shandong-héraði.

Í júní síðastliðnum fékk Wang Quanzhang loks að sjá fölskylduna sína í fyrsta skipti í fjögur ár en einungis í hálftíma. Eiginkona hans, Li Wenzu, segir hann hafa breyst mikið, hann hafi lést umtalsvert og verið þreytulegur á að líta. Hún lýsir manni sínum nú sem kvíðnum, áhyggjufullum og órólegum en áður hafi hann verið rólegur og yfirvegaður.

Fjölskyldan hefur ekki enn fengið aðgang að öllum gögnum í máli Wang Quanzhang. Þá hefur eiginkonu hans verið veitt eftirför og hún áreitt af hálfu stjórnvalda fyrir að berjast fyrir lausn hans. Li Wenzu telur að ef ekki væri verið að fylgjast svona vel með málinu um allan heim myndu stjórnvöld koma enn verr fram við hana og fjölskyldu hennar.

Wang Quanzhang er samviskufangi og á meðan hann er í haldi á hann á hættu að vera pyndaður og sæta illri meðferð.

Þrýstu á kínversk stjórnvöld að láta Wang Quanzhang lausan úr haldi tafarlaust!

Má bjóða þér að skrifa undir fleiri mál?
Thanks for signing this particular petition
This is just a demo. You can put whatever you want in these pop-ups.