Rússland

Rússland: Heilsu Tatara í haldi hrakar

Edem Bekirov Tatari frá Krímskaga, hefur setið í varð­haldi í borg­inni Simferopol frá því að rúss­neskar örygg­is­sveitir hand­tóku hann þann 12. desember 2018. Edem Bekirov notast við hjóla­stól og glímir við alvarleg heilsu­far­svandamál og krefst sérhæfðrar lækn­is­að­stoðar sem stendur honum ekki til boða í varð­haldinu. Eftir síðustu heim­sóknina, 24. maí s.l. lýsti lögfræð­ingur Edem áhyggjum yfir heilsu hans sem færi veru­lega hrak­andi.

Edem Bekirov er af þjóð­ar­broti Tatara frá Krímskaga sem er í minni­hluta í Úkraínu. Hluti fjöl­skyldu Edems býr enn á Krímskag­anum sem Rússar hertóku og innlimuðu árið 2014. Þann 12. desember 2018 var Edem Bekirov að heim­sækja móður sína og fleiri ættingja á Krímskag­anum þegar hann var hand­tekinn af rúss­neskum örygg­is­sveitum. Í kjölfar hand­tök­unnar hlaut hann ómann­úð­lega og niður­lægj­andi meðferð, hann fékk hvorki aðgang að lækn­is­þjón­ustu né mat eða drykk í tvo daga. Réttur hans til rétt­látrar máls­með­ferðar hefur ekki verið virtur. Hann var ásak­aður um að hafa sprengi­efni og skot­færi í fórum sínum. Ásak­anir sem þessar eru gjarnan notaðar af rúss­neskum lögreglu­yf­ir­völdum í þeim tilgangi að herja á einstak­linga og ákæra þá handa­hófs­kennt af póli­tískum ástæðum. Edem Bekirov hefur ávallt haldið fram sakleysi sínu.

Allt frá hernámi og ólög­legri innleið­ingu Rússa á Krímskag­anum árið 2014 hefur Amnesty Internati­onal safnað gögnum um kerf­is­bundnar ofsóknir gegn Töturum frá Krímskaga af hálfu rúss­neskra yfir­valda sem má lesa um nánar í skýrslu samtak­anna In the dark: The silencing of dissent

Mál Edems Bekirovs ásamt málum annarra Tatara frá Krímskaga hefur náð athygli Evrópu­ráðsins og Evrópu­sam­andsins sem má lesa um nánar hér.

Þrýstu á rúss­nesk stjórn­völd að veita Edem Bekirov viðeig­andi lækn­is­þjón­ustu og rétt­láta máls­með­ferð. Skrifaðu undir málið núna!

Þau þurfa þína hjálp!

Þín undirskrift getur bjargað mannslífi

Rússland

Fólk fangelsað fyrir að mótmæla stríðinu í Úkraínu

Rússnesku ritskoðunarlögin brjóta gegn mannréttindum. Rússland verður að afnema þessi ósanngjörnu lög án tafar og leysa úr haldi öll þau sem eru fangelsuð fyrir að tjá skoðanir sínar gegn stríðinu. Sýnum fólki í Rússlandi samstöðu sem hefur þor til að mótmæla friðsamlega stríðinu gegn Úkraínu.

Kólumbía

Verndum mannréttindafrömuði í Kólumbíu

Dag hvern hætta mannréttindafrömuðir lífi sínu í þágu mannréttinda í Kólumbíu. Vernda verður rétt þeirra til að tryggt sé að kólumbískt fólk geti lifað lífi sínu frjálst undan ofbeldi. Að berjast fyrir mannréttindum í Kólumbíu er afar hættulegt og mannréttindafrömuður er myrtur um það bil annan hvern dag. Skrifaðu undir og krefstu þess að kólumbísk stjórnvöld tryggi umfangsmiklar öryggisaðgerðir og verndi alla mannréttindafrömuði.

Alþjóðlegt

TikTok þarf að gæta öryggis barna og ungs fólks

Ungir notendur lýsa TikTok sem skaðlegum og ávanabindandi miðli þar sem þeir eiga á hættu að verða háð miðlinum út af tillögum sem sérstaklega eru sniðnar að þeim. Börn og ungt fólk sem horfa á myndefni sem tengist geðheilsu á TikTok eru líklegri til að fá tillögur um að horfa á sífellt fleiri myndbönd sem fjalla um, fegra og jafnvel hvetja til þunglyndislegra hugsana, sjálfskaða og sjálfsvígs. Skrifaðu undir og krefstu þess að að TikTok banni á heimsvísu sérsniðnar auglýsingar sem beint er að ungum notendum, og sjái til þess að það sé val að hafa sérsníðaðar tillögur að myndefni á efnisveitunni í stað þess að það sé sjálfgefið.

Lýðstjórnarlýðveldið Kongó

Stöðvið þvingaða brottflutninga í Kolwezi

Að svara eftirspurn heimsins eftir kopar og kóbalti er íbúum í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó dýrkeypt. Þeir eru beittir þvinguðum brottflutningum og ofbeldi ásamt því að heimili þeirra eru eyðilögð. Skrifaðu undir ákall um að Tshisekedi forseti stöðvi þvingaða brottflutninga og mannréttindabrot í grennd við kopar- og kóbaltnámur.

Venesúela

Leysið úr haldi ranglega fangelsaða Venesúelabúa

Í nýrri skýrslu Amnesty International fordæma samtökin kúgunarstefnu ríkisstjórnar Nicolás Maduro í Venesúela og greina frá málum níu einstaklinga sem sæta varðhaldi að geðþótta. Skrifaðu undir og krefstu tafarlausrar lausnar þeirra án skilyrða.

Ísrael

Stöðva þarf tæknivædda aðskilnaðarstefnu gegn Palestínubúum

Palestínubúar berjast gegn andlitsgreiningartækni sem er notuð til að takmarka grundvallarréttindi þeirra. Tækni getur bætt aðgengi að námi, heilbrigðisþjónustu, upplýsingum og veitt fólki aukin tækifæri óháð uppruna þess. Ekki skal beita tækninni til að áreita og jaðarsetja Palestínubúa í þeim tilgangi að framfylgja aðskilnaðarstefnu Ísraelsríkis. Skrifaðu undir bréf til framleiðenda andlitsgreiningartæknibúnaðarins og krefstu tafarlausrar stöðvunar á framleiðslu á tæknibúnaði sem notar andlitsgreiningu og lífkenni.