Slitinn frá fjölskyldu sinni

Yiliyasijiang Reheman og kona hans Mairinisha Abuduaini áttu von á öðru barni sínu þegar hans var saknað. Ungu hjónin voru að byggja upp framtíð sína, stunduðu háskólanám í Egyptalandi  og fjölskyldan fór stækkandi.

Líf þeirra var lagt í rúst þegar Kína þrýsti á egypsk stjórnvöld að safna saman hundruðum Úígúra í landinu, en Úígúrar eru múslimskur minnihlutahópur sem býr á sjálfstjórnarsvæði í Xinjiang í Kína, og senda suma þeirra aftur til Kína. Yiliyasijiang var í þessum hópi.

Þremur vikum seinna fæddi Mairinisha barn þeirra ein. Hún var aðeins 19 ára gömul. Frá árinu 2017 hefur hún leitað að eiginmanni sínum og heldur enn fast í vonina um að fjölskylda þeirra sameinist á ný.

Mairinisha, sem býr nú í Tyrklandi, hefur frétt í gegnum vini að Yiliyasijiang hafi  verið sendur aftur til Xinjiang. Hana grunar að hann sé í leynilegum búðum þar sem Úígúrar eru heilaþvegnir af áróðri kínverskra stjórnvalda.

Allt að ein milljón múslima hefur verið slitin frá fjölskyldu sinni og haldið í þessum búðum frá árinu 2017. Sterk hreyfing fólks um heim allan hefur risið upp til að bregðast við þessu óréttlæti. Mairinisha á sér aðeins eina ósk: að eiginmaður hennar snúi aftur heill á húfi til hennar og barna þeirra. „Það á að leysa eiginmann minn úr haldi eins fljótt og hægt er,“ segir hún. „Börnin okkar þurfa á föður sínum að halda. Ég gefst ekki upp fyrr en við höfum sameinast á ný.“

Skrifaðu undir bréfið og krefstu þess að kínversk stjórnvöld leysi Yiliyasijiang strax úr haldi.

Má bjóða þér að skrifa undir fleiri mál?
Thanks for signing this particular petition
This is just a demo. You can put whatever you want in these pop-ups.